Unnargrund í Garðabæ | Raðhús
Garðabær, raðhúsahverfi, OG arkitektar
EFLA sá um verkfræðihönnun á raðhúsahverfi í Garðabæ sem inniheldur 25 raðhús og er hvert um sig 150 m2.
Upplýsingar um verkefnið
Verkkaupi
Byggingarsamvinnufélag eldri borgara í Garðabæ
Verktími
2016-2017
Staðsetning
Garðabær
Tengiliður
Bjarni Jón Pálsson Byggingarverkfræðingur M.Sc. Sími: +354 412 6050 / +354 665 6050 Netfang: bjarni.jon.palsson@efla.is Reykjavík
Um hvað snýst verkefnið
Við Unnargrund i Garðabæ standa 25 raðhús sem Byggingarsamvinnufélag eldri borgara í Garðabæ er að byggja. EFLA hefur séð um alla verkfræðihönnun tengda verkinu í samvinnu við Garðar Guðnason arkitekt hjá OG Arkitektastofunni. Hvert raðhús er 150 m2 þannig að heildarstærð verkefnisins er 3.750 m2.
Húsin eru á einni hæð og samanstendur burðarkerfi þeirra af steyptum veggjum og botnplötu ásamt léttu timburþaki. Gólfhitakerfi hitar upp húsin, nema í bílskúr þar sem hitað er með ofnum. Vélrænt útsog er frá baðherbergi, þvottahúsi og eldhúsi þar sem ekki er opnanlegt fag. Neysluvatnslagnir og hitalagnir eru utanliggjandi í bílskúr en innsteyptar í botnplötu í íbúðarhúsi, lagðar með rör í rör kerfi. Raflagnir eru innfelldar og tafla er staðsett í bílskúr. Samskiptatenglar fyrir tölvu og sjónvarp eru í herbergjum stofu og sjónvarpsherbergi. Húsin eru öll útbúin tenglum fyrir hleðslu rafbíla.
Öll hönnunarvinna var unnin í þrívídd og voru þrívíddarlíkönin notuð til að framkvæma árekstrargreiningar.
Hönnun lauk sumarið 2016.
Hlutverk EFLU
- Hönnun burðarvirkja
- Hönnun lagna og loftræsingar
- Hönnun rafkerfa
