Beint í efni
Tún í Borgarbyggð með gulum blómum og fjöll í baksýn á sumardegi.

Endurskoðun að­al­skipu­lags Borg­ar­byggðar

BorgarbyggðSkipulagsmál

Endurskoðun Aðalskipulags Borgarbyggðar 2025–2037 nær yfir allt land innan sveitarfélagsins og mótar heildstæða stefnu um landnotkun, byggðaþróun, náttúruvernd og uppbyggingu grunnkerfa til næstu tólf ára.

Viðskiptavinur
  • Borgarbyggð
Verktími
  • 2023 - 2026
Þjónustuþættir
  • Aðalskipulag
  • Skipulagsmál
  • Mat á umhverfisáhrifum

Markmið verkefnisins var að móta skýra, raunhæfa og framtíðarmiðaða stefnu sem styður sjálfbæra þróun, styrkir samfélagið til langs tíma og er aðgengileg bæði stjórnvöldum og almenningi.

EFLA gegndi lykilhlutverki í undirbúningi, greiningu, skipulagsgerð og samhæfingu verkefnisins í nánu samstarfi við Borgarbyggð.

Aðalskipulagið leggur grunn að framtíðarinnviðum sveitarfélagsins og styður upplýstar stefnumarkandi ákvarðanir.

Teikning af skipulagi í Borgarbyggð

Helstu atriði

  • Verkefni: Aðalskipulag
  • Staðsetning: Borgarbyggð
  • Umfang: Allt land innan sveitarfélagsmarka (2025–2037)
  • Áherslur: Sjálfbær landnýting, loftslagsaðlögun, náttúruvernd, stafrænt skipulag
  • Hlutverk EFLU: Skipulagsgerð, ráðgjöf, umhverfismat og samhæfing

Verkefnið

Gildistími fyrra aðalskipulags Borgarbyggðar var liðinn og þörf hafði skapast fyrir heildstæða endurskoðun sem tæki mið af nýjum áskorunum og breyttum forsendum. Verkefnið fól í sér að samræma landnotkun, byggðaþróun og vernd náttúruauðlinda, með sérstakri áherslu á loftslagsmál, náttúruvá og sjálfbæra nýtingu lands.

Mikilvægt var að skipulagið byggði á traustum greiningum, hefði skýra stefnu og væri hagnýtt í framkvæmd.

Lausnin

Unnið var á grundvelli þverfaglegrar samvinnu sérfræðinga EFLU á sviði skipulags, umhverfismála og verkfræði. Verkefnið studdist við kerfisbundna forsendugreiningu, ítarlegt umhverfismat og stafræna framsetningu í landupplýsingakerfi.

Skipulagið var unnið í samræmi við leiðbeiningar HMS um stafrænt aðalskipulag og er sett fram í skipulagsvefsjá, sem eykur aðgengi, gagnsæi og nýtanleika gagna.

Þéttbýlisuppdráttur fyrir Borgarbyggð

Niðurstöður og ávinningur

Endurskoðað aðalskipulag skapar traustan ramma fyrir framtíðarþróun Borgarbyggðar.

Í því felst meðal annars:

  • betri grundvöllur fyrir stefnumarkandi ákvarðanir,
  • aukið aðgengi að skýrum og uppfærðum skipulagsgögnum,
  • aukin vitund um náttúruvá, loftslagsáhrif og vernd verðmætra auðlinda,
  • stuðningur við sjálfbæra landnýtingu og jafnvægi milli uppbyggingar og verndar.

Aðkoma EFLU

  • Skipulagsgerð og stefnumótun
  • Forsendugreining og umhverfismat
  • Stafræn framsetning aðalskipulags í landupplýsingakerfi
  • Greiningar og fylgiskjöl, m.a.:

- kortlagning takmarkana vegna vindorku,

- flokkun landbúnaðarlands og vega í náttúru Íslands

  • Samhæfing samráðs, kynningar og úrvinnslu umsagna
  • Verkefnastjórnun og fagleg ráðgjöf

Viltu vita meira?

EFLA - Endurskoðun aðalskipulags Borgarbyggðar