Ferðaþjónusta

Stapavík | Útsýnispallur

Ferðamannastaður, Fljótsdalshérað, Ferðaþjónusta

EFLA sá um hönnun útsýnispalls og öryggisgirðingar við Stapavík á Fljótsdalshéraði. Verkefnið var unnið í samvinnu við sveitarfélagið sem hlaut styrk til framkvæmdarinnar úr uppbyggingarsjóði ferðamannastaða.

Upplýsingar um verkefnið

Verkkaupi
Fljótsdalshérað

Verktími
2020

Staðsetning
Stapavík

Tengiliður

Um hvað snýst verkefnið

Stapavík er vinsæll áfangastaður ferðamanna og fallegur útsýnisstaður yfir Héraðsflóa. Stapavík er gömul uppskipunarhöf Héraðsmanna en í upphafi 20. aldar gegndi hún mikilvægu hlutverki sem verslunarstaður fyrir Fljótsdalshérað. Þangað var vörum skipað upp alveg fram á sjötta áratug síðustu aldar. Í kjölfar þess að vegur var lagður yfir Vatnsskarð til Borgarfjarðar eystra lagðist starfsemi í Stapavík af. 

Við Stapavík eru rústir af gömlu tækjunum sem notuð voru við uppskipun og var lögð áhersla á að leyfa þeim að njóta sín. Verkefnið fólst í því að hanna útsýnispall fram á brún klettsins ásamt því að koma upp grindverki til að minnka fallhættu við klettabrúnina og auka öryggi ferðamanna. 

Hlutverk EFLU

  • Hönnun útsýnispalls
  • Burðarþolshönnun
  • Framkvæmdaráðgjöf

Verkefnið var unnið í samvinnu við sveitarfélagið Fljótsdalshérað með styrk frá uppbyggingarsjóði Ferðamannastaða árið 2018.

Stapavík - útsýnispallur - hönnun EFLAStapavík er gömul uppskipunarhöfn Héraðsmanna. Sjá rauðan punkt á mynd. 

Ávinningur verkefnis

Svæðið er öruggara fyrir ferðamenn sem koma í Stapavík til að njóta tilkomumikils útsýnis. Stapavík er vinsælt göngusvæði og að víkinni liggur vörðuð leið frá þjóðveginum sem tekur um klukkutíma að ganga hvora leið.

Viltu hafa samband?

Ef þú vilt vita meira um verkefnið eða þjónustuna er velkomið að senda okkur skilaboð og við höfum samband við þig.

Hafa samband


Var efnið hjálplegt? Nei