Lýsingarhönnun | Landsbankinn í Reykjanesbæ
Landsbankinn hf, Rafholt, Reykjanesbær
EFLA sá um lýsingarhönnun fyrir útibú Landsbankans í Reykjanesbæ þegar innréttingar bankans voru endurhannaðar.
Upplýsingar um verkefnið
Verkkaupi
Landsbankinn hf
Arkitekt
Gunnar Guðnason
Lýsingarhönnuðir
EFLA, Arnar Ingólfsson og Hörður Sanders
Verktími
2012 - 2013
Staðsetning
Reykjanesbær
Rafverktaki
Rafholt
Tengiliðir
Arnar Ingólfsson Rafiðnfræðingur Sími: +354 412 6032 / +354 665 6032 Netfang: arnar.ingolfsson@efla.is Reykjavík
Um hvað snýst verkefnið
Lýsingarhönnuðir EFLU fengu frjálsar hendur þegar lýsing fyrir útibú Landsbankans var endurhönnuð og nýjum innréttingum komið fyrir. Þetta er eitt fyrsta verkefni EFLU þar sem LED lýsing var notuð í meira mæli en hefðbundnir ljósgjafar.
Hlutverk EFLU
Móttakan og inngangurinn eru römmuð skemmtilega inn með sveigðum LED lampalengjum en þess má geta að LED lamparnir koma sveigðir frá framleiðanda eftir forskrift hönnuða. Hringlaga LED lampar lýsa gönguleiðir á skemmtilegan máta með beinni og óbeinni lýsingu en biðsvæði eru lýst með ferköntuðum hefðbundnum flúrperum (sparperum).
Lýsingin skapar góða heildarmynd og er stýrð með DALI ljósastýrikerfi sem forritað er af EFLU.
Verkþættir
Hringlaga LED lampar lýsa gönguleiðir.
Lamparnir yfir móttökuna eru sveigðir.
Skrifstofurýmið er bjart og opið.