Iðnaður

Lýsingartækni | Vegir í Noregi

Harstad, þéttbýlisstaður í Tromsfylki í norður Noregi

Hönnun veg- og gangstígalýsingar, lýsingar í undirgöngum og við göngubrú auks skrautlýsingar í hringtorgum og undirgöngum.

Upplýsingar um verkefnið

Verkkaupi
Statens Vegvesen, norðursvæði, Noregi

Verktími
2013 - 2017

Staðsetning
Harstad, Noregi

Tengiliður

Um hvað snýst verkefnið

Verkið fólst í því að hanna veg-, göngu- og hjólreiðastígslýsingu á endurgerðum vegi gegnum þéttbýlissvæðið Harstad. Einnig var hönnuð skrautlýsing í undirgöng og á miðeyjum hringtorga. Öll lýsingin er hönnuð með LED lýsingu eftir norskum stöðlum.

Í undirgöngum fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur var hönnuð lýsing á bak við veggi klædda með trérimlum auk þess sem hannaðir voru innsteyptir og upplýstir hringir í loft ganganna.

Á göngubrú, sem byggð er yfir eitt hringtorganna, var hönnuð LED lýsing í handriðum á báðum hliðum brúarinnar. Allar tröppur við undirgöng og göngubrú eru hannaðar með snjóbræðslukerfi með rafhitastrengjum.

Í miðeyjum hringtorga var hönnuð LED skrautlýsing sem festist á misháa tréstaura.

Umhverfismál

Leitast var við að lýsingin félli vel að umhverfinu, væri orkusparandi og ylli sem minnstri ljósmengun á svæðinu.

Verkþættir

Hlutverk EFLU

  • Ráðgjafi verkkaupa
  • Hönnun raf- og lýsingarkerfa
  • Hönnun skrautlýsingar í undirgöngum og á hringtorgum
  • Hönnun snjóbræðslukerfa með rafmagnsstrengjum


Var efnið hjálplegt? Nei