
Nýtt skjákerfi fyrir Norðurorku
Norðurorka uppfærði skjákerfi félagsins til að auka öryggi og áreiðanleika stjórnkerfa þess. EFLA var ráðgjafi í verkefninu og sá um uppsetningu, hönnun og gangsetningu á nýju Siemens WinCC skjákerfi.
Um hvað snýst verkefnið
Verkefninu var skipt upp í nokkra áfanga. Fyrst var gerð þarfagreining og í kjölfarið valið nýtt og hentugt skjákerfi fyrir Norðurorku. Fyrir valinu varð Siemens WinCC skjákerfi sem EFLA er samstarfsaðili (e: solution partner) fyrir.
Annar fasi verkefnisins var að setja upp sjálft grunnkerfið og alla grunnvirkni þess.
Ákveðið var að hefja innleiðingu á skjákerfinu í einni veitu í einu og var skjákerfið tekið í notkun í fráveituhlutanum síðla vetrar 2018. Í kjölfarið bætast aðrar veitur við kerfið, þ.e. vatnsveita, hitaveita, rafveita og virkjanir.
Hlutverk EFLU
- Forritun nýs skjákerfis fyrir mismunandi veitur
- Prófunarlýsingar og prófunarskjöl
- Prófanir á skjákerfum áður en uppsetning á sér stað
- Breytingar á PLC forritum til að nýta nýjan staðal
- Uppsetning og prófanir
Ávinningur verkefnis
Nýja skjákerfið veitir betri yfirsýn á stjórnkerfi Norðurorku og er þannig góð viðbót við núverandi eftirlitskerfi. Rekstraraðilar fyrirtækisins geta nú tengst kerfinu úr fartölvum og snjalltækjum hvar sem er til eftirlits á veitum fyrirtækisins.