Öryggis- og heilbrigðisáætlun Háskólans í Reykjavík
Markmið verkefnisins var að gera áhættumat starfa hjá Háskólanum í Reykjavík (HR). Áhættumatið náði til allra starfseininga skólans.
Um hvað snýst verkefnið
Í verkefninu var gert áhættumat starfa sem er einn liður í öryggis- og heilbrigðisáætlun HR.
Í framhaldi var gerð aðgerðaráætlun fyrir úrbætur. Í lokin tók öryggisnefnd HR við niðurstöðunum og mun nefndin sjá um eftirfylgni. Þessi vinna er einn liður í gerð öryggis- og heilbrigðisáætlunar HR.
Ráðgjafi EFLU leiddi öryggisnefnd HR í gegnum verkferlið. Verkefnið var unnið í nánu samstarfi milli ráðgjafa EFLU og öryggisnefndar HR ásamt ábyrgðarmönnum hverrar starfseiningar fyrir sig.
Umhverfismál
Sem liður í áhættumati starfa var tekið á geymslu, meðhöndlun og notkun varasamra efna sem skiptir máli út frá öryggissjónarmiðum og ekki síður umhverfissjónarmiðum.
Hlutverk EFLU
- Leiða vinnuna við áhættumat starfa
- Fræða starfsfólk HR um gerð skriflegrar áætlunar um öryggi og heilbrigði á vinnustað
- Setja fram ábendingar um úrbætur