Leikgrindur á leikskólasvæði.

Rekstrarskoðanir leiksvæða í Reykjavík

ReykjavíkSamgöngur og innviðir

Öryggis- og rekstrarskoðanir allra skólalóða, leikskólalóða og opinna svæða.

Viðskiptavinur
  • Reykjavíkurborg
Verktími
  • 2014 - 2017
Þjónustuþættir
  • Þarfagreining

Um hvað snýst verkefnið

Reykjavíkurborg er rekstraraðili á fjórða hundrað leiksvæða við leikskóla, grunnskóla og á opnum svæðum. Framkvæma þarf á hverju ári öryggisskoðanir leiksvæða og eru þær lögum samkvæmt fimm talsins þ.e. ein s.k. aðalskoðun og fjórar s.k. rekstrarskoðanir.

Verkefnið snýst um að koma skipulagi á skoðanir leiksvæða í Reykjavík og innleiða nýja tækni (app e. smáforrit) við framkvæmd þeirra. Skráning leiksvæða þ.m.t. leiktækja, búnaðar og lóðar er nauðsynleg grunnvinna vegna innleiðingar smáforrits við framkvæmd rekstrarskoðana.

Samhliða skráningunni var framkvæmd rekstarskoðun fyrir hvert svæði.

Markmið verkkaupa (rekstraraðila) er að koma á kerfi þar sem auðveldlega má rekja öll frávik í starfseminni og eftirfylgni er tryggð. Einnig að ná fram hagræðingu og tímasparnaði við skoðanirnar í framtíðinni.

Smáforritið er orðið virkt og hægt er að framkvæma rekstrarskoðanir í snjallsíma eða spjaldtölvu á staðnum, á fljótlegri og markvissari hátt en áður.

Hlutverk EFLU

  • Ráðgjafi við innleiðingu í samstarfi við fyrirtækið Mainmanager ehf.
  • Umsjón og skráning leiksvæða s.s. leiktækja, búnaðar og lóðar
  • Uppstilling gátlista sem sérsniðnir eru hverju leiksvæði
  • Rekstrarskoðun leiksvæða og skráning í kerfi Mainmanager smáforritsins
  • Úrvinnsla skoðana, greining og forgangsröðun.

Ávinningur verkefnis

Allar skoðanir á leiksvæðum Reykjavíkurborgar fara eftirleiðis fram með snjalltæki og Mainmanager-appinu. Ábendingar/frávik berast strax til ábyrgðaraðila sem annast úrbætur. Þannig styttist tíminn frá skráningu atviks til viðgerða til muna auk þess að viðhaldssaga leiksvæða er skráð.

Viltu vita meira?