Samgöngur

Eftirlit með malbikun gatna

Götur, malbikun, Reykjavík, Slitlag gatna, Samgöngur

EFLA sá um eftirlit með malbikun gatna og gatnaviðhald fyrir Reykjavíkurborg.

Upplýsingar um verkefnið

Verkkaupi
Reykjavikurborg

Verktími
maí 2016 - september 2016

Staðsetning
Reykjavík, Ísland

Tengiliðir

Um hvað snýst verkefnið

EFLA hefur tekið að sér fjöldamörg verkefni við skoðun slitlags gatna og endurnýjun þess ásamt mati á viðhaldsþörf á slitlögum gatna. EFLA hefur auk þess séð um eftirlit með viðhaldsframkvæmdum á slitlögum gatna. Eitt af þeim verkum var eftirlit með endurnýjun malbikaðra slitlaga á götum Reykjavíkur árið 2016. Umfang verksins var endurnýjun slitlaga á tæplega 18 km gatna innan borgarmarka.

Hlutverk EFLU

Hlutverk EFLU var að sjá um samskipti við verktaka og sjá til þess að gæði verksins væru tryggð en einnig að allar kröfur um öryggi við framkvæmdir væru uppfylltar. Utanumhald um kostnað verksins og framkvæmdartíma var einnig hlutverk EFLU.

IMG_4068Við malbökunareftirlit.

IMG_4064_Öflugar vinnuvélar eru notaðar við malbikunina.

IMG_4063Frá verkstað.

IMG_4065Frá verkstað.



Var efnið hjálplegt? Nei