Umferðaröryggi skólabarna
Hafnarfjörður, Hafnarfjarðarbær, Umferð, Skólabörn
EFLA sá um að framkvæma úttekt á umferðaröryggi skólabarna við grunnskóla í Hafnarfirði og koma með tillögur að úrbótum.
Upplýsingar um verkefnið
Verkkaupi
Hafnarfjarðarbær
Verktími
2015 - 2016
Staðsetning
Hafnarfjörður
Tengiliður
Elín Ríta Sveinbjörnsdóttir Skipulagsfræðingur M.Sc. Sími: +354 412 6073 / +354 665 6073 Netfang: elin.rita.sveinbjornsdottir@efla.is Reykjavík
Um hvað snýst verkefnið
Mikilvægt er að stuðla að öruggu umhverfi í nágrenni grunnskóla. Við skóla blandast oft saman umferð gangandi og hjólandi barna og bílaumferð foreldra (sem skutla börnum) og starfsmanna.
EFLU var falið að gera úttekt á umferðaöryggi við sjö grunnskóla í Hafnarfirði. Tilgangur verkefnisins var að finna staði þar sem þörf er á úrbótum og gera aðgerðaráætlun sem felur í sér forgangsröðun og kostnaðarmat á aðgerðum að bættu umferðaröryggi.
Verkþættir
Hlutverk EFLU
- Greining á aðstæðum við skóla og í næsta nágrenni skóla (umferðaröryggi)
- Greining á umferðarslysum í skólahverfum á fimm ára tímabili
- Greining á samgöngum starfsmanna og nemenda í skólann (gangandi, hjólandi, skutlað og strætó)
- Útfæra og forgangsraða aðgerðum til að auka öryggi
- Kostnaðarmat fyrir einstakar aðgerðir
Ávinningur verkefnis
Öruggara umhverfi fyrir alla. Verkefnið var hluti af áætlun Hafnarfjarðarbæjar um bætt öryggi í umferðinni og þá sérstaklega skólabarna.