Deiliskipulag | Öldur III á Hellu
Rangárþing, Skipulagsmál, Aðalskipulag, Sveitarfélag
Upplýsingar um verkefnið
Verkkaupi
Rangárþing ytra
Verktími
2017-2018
Staðsetning
Hella
Tengiliður
Gísli Gíslason Landslagsarkitekt M.Sc. - Svæðisstjóri Sími: +354 412 6441 / +354 665 6441 Netfang: gisli.gislason@efla.is Selfoss
Um hvað snýst verkefnið
Með deiliskipulaginu er brugðist við þörf á fjölbreyttri stærð íbúðarlóða og íbúða á Hellu.
Markmiðið var að mynda fallega og heilsteypta byggð sem liggur vel í landi og myndar eðlileg tengsl við núverandi byggð. Lóðir eru misstórar og henta mismunandi húsagerðum og stærðum. Leitast var við að tengja hverfið við nærliggjandi byggð og skólasvæðið með góðum gönguleiðum.
Umhverfismál
Bent er á þann möguleika að veita vatni af húsþökum og hörðu yfirborði beint niður í jarðveginn. Koma má fyrir malarpúðum, undir yfirborði lóða, sem getur tekið við yfirborðsvatni í rigningum þannig að vatnið seytli smám saman út í jarðveginn og niður í grunnvatnið.
Sett eru tímamörk á frágang lóða og skilmálar um umgengni.
Verkþættir
Hlutverk EFLU
- Ráðgjafi verkkaupa við gerð deiliskipulags
- Umsjón með tillögugerð ásamt Rangárþingi ytra
- Úrvinnnsla og framsetning deiliskipulagstillögu
- Mat á líklegum áhrifum þeirra framkvæmda sem talið var að gætu haft umtalsverð áhrif á umhverfið
Ávinningur verkefnis
Búið er að skipuleggja fjölbreyttar íbúðarlóðir sem nýtast sveitarfélaginu til úthlutunar og uppbyggingar á næstu árum.