
Stjórnkerfi fyrir Íslandsbleikju
GrindavíkIðnaður
EFLA sá um uppbyggingu á sjálfvirku fóðurkerfi og dælustýringu fyrir fiskeldisstöð Íslandsbleikju.
Um hvað snýst verkefnið
Uppbygging á sjálfvirku fóðurkerfi og dælustýringu fyrir eldisker ásamt súrefnisvöktun og súrefnisstýringu. Forritun skjákerfa til að kalla fram sjálfvirkar skýrslur sem veita yfirlit um orkunotkun stöðvanna í rauntíma.
Hlutverk EFLU
- Þarfagreining með rekstraraðilum
- Hönnun og forritun kerfa
- Uppsetning og þjónusta við kerfi
Ávinningur verkefnis
Tilgangur stjórnkerfanna er að hámarka hagkvæmni rekstursins og auka afköst stöðvarinnar.
Kerfin gefa rekstraraðilum góða yfirsýn á stöðu í eldiskerfum ásamt því að veita upplýsingar um orkunotkun í rauntíma.