![Virkjun með fjöll í baksýn.](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fefla-is.payload.is%2Fmedia%2Fgrundartangavirkjun-2000x1015.png&w=2048&q=80)
Stjórnkerfi í steypuskála fyrir Norðurál
EFLA uppfærði rafkerfi og stjórnkerfi við steypulínu þannig að það samræmist gildandi stöðlum Norðuráls.
Um hvað snýst verkefnið
EFLA uppfærði stjórnkerfi fyrir Ofn 1 og Steypulínu 1 í steypuskála Norðuráls. Aðrar steypulínur og ofna var þegar búið að uppfæra samkvæmt stöðlum fyrirtækisins. Markmið verkefnisins var að uppfæra stjórnkerfi fyrir Ofn 1 og Steypulínu 1, í steypuskála Norðuráls. Gamalt stjórnkerfi frá '98 var einnig uppfært í nýjustu tækni.
Verkefnið fólst í endurhönnun á afldreifingu vélanna, útskiptum á stýrivél og forritun á nýrri vél auk útskipta á SCADA kerfi og uppfærslu á öryggisbúnaði vélanna samkvæmt stöðlum fyrirtækisins. Stuttur tími var fyrir innleiðingu á nýju stjórnkerfi og því var nýja kerfið hermað ítarlega í hermunarlíkani EFLU.
Þá var tryggt að stjórnkerfið væri samhæft við stjórnkerfi annarra steypuvéla, stýrivélar og skjákerfi auk þess var vélasamstæðan gerð hæf til samræmingar samkvæmt Evrópustöðlum.
Hlutverk EFLU
- Hönnun á nýjum afldreifi og stýriskápum
- Endurteikna rafkerfi vélanna
- Endurnýja alla stýringu á steypulínu og ofni