Beint í efni

Takk fyrir komuna!

Takk kærlega fyrir komuna í vísindaferð EFLU á Norðurlöndum. Ef þú leitar að afbragðs starfsumhverfi og áhugaverðum starfsvettvangi í alþjóðlegu umhverfi með góðu samstarfsfólki þá gætum við átt samleið.

three people wearing yellow working jackets and blue helmets on a construction site
Kona.

Á hverju ári leitar EFLA að kraftmiklu og metnaðarfullu sumarstarfsfólki.

Umhverfi afburða hugvits

Kjarni EFLU samanstendur af starfsfólkinu og þekkingu þess. Við leggjum áherslu á að fólki líði vel í vinnunni, njóti jafnréttis og fái tækifæri til framþróunar.

Sveigjanleiki

EFLA leitast við að stuðla að jafnvægi milli einkalífs og vinnu og er vinnutími því sveigjanlegur. Lögð er áhersla á gott starfsumhverfi og góð samskipti.

Fjölbreytt starfsþróun

Rík áhersla er lögð á að skapa starfsfólki farvegi innan fyrirtækisins sem stuðla að aukinni hæfni hvers og eins og leggjum okkur fram við að skapa uppbyggilegan starfsanda sem byggir á virðingu og góðum samskiptum.
Fólk í kaffi brosandi

Teymishugsun út í gegn

Við hjá EFLU störfum í krefjandi umhverfi þar sem verkefnin eru fjölbreytt og síbreytileg. Við sækjumst eftir því að fá til liðs við okkur kraftmikið og metnaðarfullt fólk sem skarar fram úr á sínu sviði. Við treystum starfsfólkinu okkar og veitum því tækifæri til að axla ábyrgð í verkefnum sínum.

Við vinnum saman í fagteymum. Teymin eru af ýmsum stærðum og gerðum en öll innihalda þau samstilltan hóp einstaklinga sem vinna að sameiginlegum markmiðum og veita hver öðrum stuðning og endurgjöf. Í teymum EFLU eru ekki undirmenn og yfirmenn heldur einkennast þau af lifandi verkaskiptingu einstaklinga með ólíkan bakgrunn, styrkleika og starfsaldur í faginu. Þannig fáum við öll tækifæri til að taka ábyrgð, skiptast á skoðunum og þróast áfram í ólíkum hlutverkum innan teyma.

Störf óháð staðsetningu

Höfuðstöðvar EFLU eru á Lynghálsi 4 í Reykjavík en auk þess hefur fyrirtækið starfsstöðvar í öllum landsfjórðungum á Íslandi. Við bjóðum upp á störf óháð staðsetningu til að starfsfólk geti unnið í heimabyggð og tilheyrt öflugum teymum á starfsstöðvum

EFLA hefur nú starfandi dótturfélög í sex löndum eða í Noregi, Svíþjóð, Frakklandi, Skotlandi, Póllandi og nú í haust var EFLA Aps. stofnað í Danmörku.

EFLA vill bjóða íslensku námsfólki í Danmörku og Svíþjóð upp á þann möguleika að starfa hjá fyrirtækinu þótt það kjósi að búa áfram erlendis að námi loknu. Það getur því unnið áfram hjá sama fyrirtæki kjósi það að flytja síðar aftur til Íslands.

Maður brosandi

Ég heiti Patryk, ég er rafmagnstæknifræðingur og ég starfa á byggingasviði. Teymið mitt heitir Rafkerfi og lýsing en ég er staðsettur á Akureyri. Ég hóf störf í Reykjavík, tók eitt ár þar og flutti svo. Ég bara mæli bara mjög mikið með þessu og þykir algjör forréttindi að fá að starfa svona, að geta unnið bæði hér og í Reykjavík og þessvegna á Akranesi þar sem ég er uppalinn, mér finnst það bara mjög nice.

Patryk Wladyslaw Michalek
  • Rafmagnstæknifræðingur á byggingarsviði, Akureyri

Öflugt félagslíf

Starfsmannafélagið heldur ýmsa viðburði og stendur fyrir námskeiðum, fjallgöngum, tónleikum, leik- og bíósýningum, útilegum og skemmtikvöldum.

Heilsueflandi vinnustaður

EFLA leggur áherslu á heilsusamlegt umhverfi. Við hvetjum starfsfólk til að ferðast með heilsusamlegum hætti, bjóðum upp á frábært mötuneyti og veitum íþróttastyrki.

Fæðingastyrkur

EFLA býður starfsfólki sínu upp á fæðingarstyrk í fæðingarorlofi og greiðir 20% styrk á móti Fæðingarorlofssjóði. Með þessu vill EFLA leggja sitt af mörkum til að auðvelda starfsfólki að taka fæðingarorlof og samræma vinnu og einkalíf.

Velgengni fylgir vellíðan

Þegar fólkinu okkar líður vel gengur okkur vel.

people enjyoing the ocean view
Hópur fólks í Split
Maður í stuði
Fólk að sitja og hlusta
Woman on construction site

Hefur þú áhuga á að starfa hjá EFLU? Við leitum að hugmyndaríku og metnaðarfullu starfsfólki