Aldrað glæsihús fær nýjar lagnir

12.10.2010

Fréttir
Fjallendi með snjóbreiðum á Íslandi, texti þar sem stendur 'Vantar mynd'

EFLA - (Lagnasvið) fékk það verkefni í hendur að endurnýja allar pípulagnir og hitakerfið í sendiherrabústað Bretlands við Laufásveg í Reykjavík.

Aldrað glæsihús fær nýjar lagnir

Byggingin, sem er eitt af glæsihúsum Þingholtanna, er steinsteypt og reist á þriðja áratugi 20.aldar. Verkið var unnið á 6 vikum. Mikil ánægja var með vinnu og verkefnisstjórn og var þeim starfsmönnum EFLU og iðnaðarmönum sem komu að verkefninu, og mökum, boðið til móttöku í sendiráðinu að verkinu loknu.