Fréttir og bloggKynntu þér EFLU í gegnum fréttir af fólki, verkefnum fyrirtækisins og greinaskrifum starfsfólks.FréttirEFLA meðal Framúrskarandi fyrirtækja árið 2026EFLA hefur hlotið viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki árið 2026, 17. árið í röð, og hefur verið á lista framúrskarandi fyrirtækja frá upphafi. Viðurkenningin er veitt fyrirtækjum sem eru stöðug, efla hag og byggja rekstur sinn á sterkum stoðum. 30. október 2026FréttirLyngháls 4 hlýtur BREEAM In-Use vottunLyngháls 4 í Reykjavík, þar sem höfuðstöðvar EFLU eru til húsa, hefur hlotið BREEAM In-Use vottun fyrir rekstrarstýringu byggingarinnar. Eignin hlaut einkunnina Very Good, 62,2%, og er fyrsta fasteign Íþöku sem hlýtur BREEAM In-Use vottun. EFLA veitti Íþöku ráðgjöf í vottunarferlinu og annaðist jafnframt mat á eigninni samkvæmt kröfum BREEAM In-Use. 22. október 2026FréttirEFLA fær áfram staðfestingu á gæðum og ábyrgum rekstriEFLA fær endurnýjaðar vottanir samkvæmt ISO 9001, ISO 14001 og ISO 45001 og staðfestir áfram gæði, öryggi og umhverfisábyrgð.20. október 2026BloggFramtíð Mjóeyrarhafnar mótuð fyrir aukin umsvifSérfræðingar EFLU framkvæmdu greiningu fyrir sveigjanlegt hafnarskipulag Mjóeyrarhafnar sem gengur út frá því að hægt sé að aðlaga höfnina samhliða raunverulegri þróun og eftirspurn hafnarnotenda á næstu árum og áratugum.19. október 2026FréttirEFLA hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026EFLA er meðal viðurkenningarhafa Jafnvægisvogarinnar 2026. Viðurkenningin er ánægjuleg staðfesting á mikilvægi markvissrar vinnu að jafnrétti og jafnvægi í forystu. 16. október 2026FréttirNorræn reynsla styrkir þekkingu á jarðgöngumHvernig getum við gert jarðgöng öruggari og betur undirbúin fyrir óvænt atvik? Sérfræðingar EFLU kynntu sér nýjar nálganir í öryggi, viðhaldi og rekstri jarðganga á árlegum fundi norræns vinnuhóps um jarðgöng í Flåm í Noregi. Reynslan frá nágrannaþjóðum getur nýst við áframhaldandi þróun jarðganga hér á landi. 15. október 2026FréttirStafrænir tvíburar geta breytt rekstri mannvirkjaStafrænir tvíburar tengja BIM-líkön og rekstrargögn til að bæta rekstur bygginga. Kynning á BIM Skapalóni hjá EFLU og Isavia.30. september 2026FréttirDótturfélag EFLU í Frakklandi fagnar 25 árumHECLA, dótturfélag EFLU í Frakklandi, fagnaði 25 ára starfsemi fyrr í þessum mánuði. Afmælið markar aldarfjórðung af samstarfi íslenskra og franskra sérfræðinga í verkefnum innan orkugeirans í Frakklandi. Í tilefni afmælisins bauð HECLA til afmælisviðburðar þar sem litið var yfir farinn veg, árangri fyrirtækisins var fagnað og það fólk sem hefur mótað starfsemina frá upphafi var heiðrað. Meðal gesta var María Mjöll Jónsdóttir sendiherra Íslands í Frakklandi.29. september 2026FréttirOpið er fyrir umsóknir í Samfélagssjóð EFLUSamfélagssjóður EFLU veitir styrki til jákvæðra og uppbyggjandi verkefna sem nýtast samfélaginu. Umsóknarfrestur er til og með 15. október.21. september 2026