EFLA hefur hlotið viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki árið 2026, 17. árið í röð, og hefur verið á lista framúrskarandi fyrirtækja frá upphafi. Viðurkenningin er veitt fyrirtækjum sem eru stöðug, efla hag og byggja rekstur sinn á sterkum stoðum.
Við höfum sett okkur skýra stefnu og unnið markvisst að því að styrkja rekstur og starfsemi EFLU. Slíkur árangur verður ekki til á einu ári heldur byggist hann upp með stöðugri vinnu til lengri tíma. Það er ánægjulegt að fá þessa viðurkenningu fyrir þá vinnu sem við höfum lagt í reksturinn
Kristín Friðgeirsdóttir
Stjórnun - Framkvæmdastjóri
Stöðugur rekstur til framtíðar
Creditinfo framkvæmir árlega greiningu á fjárhagslegum styrk og stöðugleika íslenskra fyrirtækja. Til að hljóta viðurkenningu sem Framúrskarandi fyrirtæki þurfa fyrirtæki að uppfylla skilgreind skilyrði sem meðal annars snúa að rekstrarafkomu, eiginfjárstöðu og lánshæfi.
„Sterkur rekstrargrunnur gefur EFLU svigrúm til að þróa starfsemina áfram, fjárfesta til framtíðar og veita viðskiptavinum áreiðanlega þjónustu. Að baki árangrinum stendur öflugt starfsfólk sem leggur sitt af mörkum á hverjum degi og það skiptir sköpum þegar horft er til árangurs til lengri tíma“ segir Kristín að lokum.
