Beint í efni

EFLA fjárfestir í gervigreindar­fyrirtækinu Mynstru

16. nóvember 2026

Fréttir
Á myndinni má sjá Hjört Sigurðsson framkvæmdastjóra Mynstru ástamt Kristínu Friðgeirsdóttur framkvæmdastjóra EFLU 

Hjörtur Sigurðsson framkvæmdastjóra Mynstru ástamt Kristínu Friðgeirsdóttur framkvæmdastjóra EFLU. Ljósmynd: Birgir Örn Breiðfjörð

EFLA hefur fest kaup á 33% hlut í íslenska gervigreindar- og ráðgjafarfyrirtækinu Mynstru. Með fjárfestingunni hyggjast fyrirtækin efla þróun og hagnýtingu gervigreindar og sjálfvirkni í verkfræði, ráðgjöf og mannvirkjagerð.

Mynstra sérhæfir sig í gervigreindarlausnum og sjálfvirknivæðingu fyrir verkfræði- og byggingargeirann. Fyrirtækið hefur þróað lausnir sem þegar hafa verið teknar í notkun á íslenskum mannvirkjamarkaði.

Fjárfestingin er liður í áherslu EFLU á nýsköpun og umbreytandi tækni. Með samstarfinu verður lögð áhersla á að þróa gervigreindarlausnir sem styðja við sérfræðinga og viðskiptavini, einfalda verkferla og skapa ný tækifæri í verkfræðiráðgjöf.

„Gervigreind mun hafa mikil áhrif á þróun verkfræðiráðgjafar á næstu árum. Með þessari fjárfestingu sækjum við fram og leitum nýrra leiða til að skapa verðmæti fyrir viðskiptavini og samfélög á tímum umbreytandi tækni“, segir Kristín Friðgeirsdóttir, framkvæmdastjóri EFLU.

Fjárfesting EFLU felur í sér aukin tækifæri fyrir Mynstru til að þróa áfram lausnir í samstarfi við reynslumikla sérfræðinga. Aðkoma EFLU sem hluthafa styrkir Mynstru og gerir félaginu kleift að setja sér metnaðarfyllri markmið um vöxt.

„Mikil tækifæri eru að opnast í verkfræðiráðgjöf með gervigreind. Ég hlakka til að vinna með sérfræðingum EFLU að því að breyta þessum tækifærum í lausnir sem nýtast viðskiptavinum EFLU og Mynstru”, segir Hjörtur Sigurðsson framkvæmdastjóri Mynstru.

EFLA er alþjóðlegt þekkingarfyrirtæki á sviði verkfræði og tækni og veitir fjölbreytta ráðgjöf. Nýsköpun er lykiláhersla í starfsemi fyrirtækisins og vinnur EFLA stöðugt að því að þróa betri lausnir fyrir viðskiptavini og samfélög.