Sérfræðingar EFLU framkvæmdu greiningu fyrir sveigjanlegt hafnarskipulag Mjóeyrarhafnar sem gengur út frá því að hægt sé að aðlaga höfnina samhliða raunverulegri þróun og eftirspurn hafnarnotenda á næstu árum og áratugum.

Loftmynd af Mjóeryarhöfn
Mjóeyrarhöfn í Reyðarfirði er ein helsta inn- og útflutningsleið landsins og þar með ein mikilvægasta höfn okkar Íslendinga.
Starfsemi á hafnarsvæðinu eykst stöðugt og búist er við að nýir aðilar muni bætast við hóp þeirra sem nota höfnina á næstu árum. Þessi aukning í starfsemi og fjölda hafnarnotenda veldur aukinni komu skipa og umferðar um aðliggjandi vegi sem kallar á stækkun hafnarsvæðisins og stefnumótandi þróun fyrir starfsemina.
Stækkun Mjóeyrarhafnar og gott skipulag á hafnarsvæðinu mun skipta sköpum fyrir hafnarnotendur og sveitarfélagið í heild, þar sem samfella í rekstri, þróun og uppbyggingu eru ráðandi þættir í því að höfnin geti annað eftirspurn.

Fjölbreytt teymi sérfræðinga frá EFLU kom að verkefninu

Myndin sýnir ferli hafnarskipulagsgreiningarinnar frá skrefi til skrefs.
Greining hagsmunaaðila
Fjölmargir hagsmunaaðilar tengjast hafnarkerfinu og því var gerð hagsmunaaðilagreining. Í greiningunni voru markmið helstu aðila skilgreind með hliðsjón af skipulagningu og þróun hafnarinnar, rætt var við 42 hagsmunaaðila sem komu alls 204 atriðum til skila.
Greining á afkastagetu hafnarinnar
Innviðir Mjóeyrahafnar á sjó og í höfn voru endurskoðaðir og metnir til að greina flöskuhálsa í og við höfnina. Einnig var framkvæmd greining á rekstraraðstöðu og þjónustu í höfninni sem og tengingum á milli núverandi hafnarinnviða.
- Niðurstöðurnar úr greiningu á afkastagetu gefa til kynna að innviðir hafnarinnar (á landi hafnarsvæðisins) séu nánast fullnýttir. Má þar helst nefna takmarkað gámasvæði og legupláss á viðlegukanti. Til að mæta vaxandi eftirspurn hafnarnotenda ætti að setja í forgang að bæta þessa innviði.
Hafnarstarfsemi og sjóflutningar eru órjúfanlegur hluti af heildstæðu samgöngukerfi sem byggir á samspili ólíkra samgöngumáta og innviða. Markmið slíks kerfis er að tryggja öruggt, skilvirkt og fyrirsjáanlegt flæði fólks og vara á hafnarsvæði, jafn til og frá höfninni.
- Almennt er umferðarþungi um svæðið ekki það mikill að vegainnviðir séu nálægt þolmörkum hvað varðar afkastagetu.
Sjólag og veðurfar hafa veruleg áhrif á afkastagetu hafnarinnar.
- Skerðing á starfsemi í höfninni vegna vinda er undir 4% á ári. Þar að auki eru neikvæð áhrif öldu- og strauma og vinds á siglingar til og frá höfninni, sem og gáma- og farmmeðhöndlun í höfninni, lítil allt árið um kring, en stafar það helst af góðri staðsetningu hafnarinnar í Reyðarfirði.
Greining á þróun í hafnargeiranum
Þrír þættir skipta mestu máli fyrir sjálfbæra skipulagningu og uppbyggingu hafnarinnar en þeir eru spár um gáma- og farmflæði, val á vænlegum mörkuðum og skilgreining á þeim farmi sem hefur mesta þýðingu fyrir inn-og útflutning. Niðurstöður greiningar og spár sýna að stöðugur vöxtur verður í gámaflutningum um Mjóeyrarhöfn næstu tíu árin. Skipaumferð kemur til með að aukast, bæði í fjölda koma en einnig í stærð þeirra skipa sem leggja við höfnina.
Greining á framtíðarafkastagetu og uppbyggingu hafnarinnar
Innviðir hafnarinnar á sjó og á landi voru metnir með tilliti til framtíðarþarfa notenda hafnarinnar. Fjallað er um hugmyndir að uppbyggingu nýrra innviða til lengri tíma litið.
- Greining á afkastagetu í Mjóeyrarhöfn fyrir framtíðarþarfir hafnarnotenda bendir til þess að bæta þurfi hafnarinnviði á landi. Innviðir hafnarinnar á sjó, þ.e. dýpt og breidd snúningsrýmis, innsigling og viðlegusvæði uppfylla framtíðarþarfir hafnarnotenda.
Framtíðaruppbygging samgöngukerfis Mjóeyrarhafnar er greind með áherslu á hvernig tengingar til og frá höfninni og innra vegakerfi hennar geta þróast til að mæta vexti hafnarinnar.
- Áfangaskipt uppbygging vega-og gatnakerfisins innan hafnarsvæðisins var kynnt samhliða uppbyggingu Mjóeyrarhafnar, en þó tekið tillit til innleiðingar nýrra lausna við rekstur hafnarinnar.
Stefnumótun Mjóeyrarhafnar
Við stefnumótun í uppbyggingu og skipulagi Mjóeyrarhafnar voru skilgreind mismunandi skipulagstímabil. Þá voru kynntar ólíkar sviðsmyndir á hverju tímabili til að takast á við óvissu tengda vexti í starfsemi á hafnarsvæðinu.
Til skamms tíma litið er mikilvægt að auka afkastagetu hafnarinnar til að uppfylla núverandi þarfir hafnarnotenda og þeirrar starfsemi sem munu líklega nýta hafnarsvæðið í náinni framtíð. Til lengri tíma litið er mikilvægt að skilgreina stefnumótandi þróun á hafnarsvæðinu.

Skipulag hafnarinnar fyrir árið 2050.
Samfélagsleg og efnahagsleg áhrif Mjóeyrarhafnar
Mjóeyrarhöfn gegnir nú þegar lykilhlutverki í efnahagslífi Fjarðabyggðar og Austurlands í heild.
- Kostnaðar/ábatagreining sýnir að uppbygging Mjóeyrarhafnar gæti í heild rúmlega tvöfaldað tekjur hafnarsjóðs að raungildi á næstu áratugum.
Núverandi og hugsanlegir framtíðarhagsmunaaðilar voru boðaðir á fund þar sem niðurstöður voru kynntar og ræddar. Þátttaka hagsmunaaðila er mikilvægt skref fyrir farsæla skipulagningu og skynsamlega uppbyggingu hafnarinnar.

Dr. Majid Eskafi (hafnarverkfræðingur hjá EFLU) og Jóna Árný Þórðardóttir (bæjarstjóri Fjarðabyggðar) kynna niðurstöður greiningarinnar.
Kort.is Loftmynd af Mjóreyrarhöfn
