Lyngháls 4 í Reykjavík, þar sem höfuðstöðvar EFLU eru til húsa, hefur hlotið BREEAM In-Use vottun fyrir rekstrarstýringu byggingarinnar. Eignin hlaut einkunnina Very Good, 62,2%, og er fyrsta fasteign Íþöku sem hlýtur BREEAM In-Use vottun. EFLA veitti Íþöku ráðgjöf í vottunarferlinu og annaðist jafnframt mat á eigninni samkvæmt kröfum BREEAM In-Use.
Sjálfbærni í daglegum rekstri
BREEAM In-Use er alþjóðlegur sjálfbærnistaðall fyrir byggingar sem þegar eru í rekstri. Staðallinn veitir fasteignaeigendum og rekstraraðilum ramma til að meta gæði og árangur við rekstur bygginga, greina tækifæri til úrbóta og vinna markvisst að aukinni sjálfbærni í rekstri.
BREAAM in-Use staðallinn skiptist í tvo meginþætti, annars vegar mat á ástandi og eiginleikum byggingar (e. Asset Performance) og hins vegar mat á árangri stjórnunar og rekstri byggingar (e. Management Performance) þar falla undir meðal annars stefnur, verklag og innkaup.
Á Lynghálsi 4 var sá hluti staðalsins sem snýr að stjórnun og rekstri byggingarinnar innleiddur og vottaður. Niðurstaða matsins var sú að rekstrarstýring eignarinnar uppfylli kröfur BREEAM In-Use og hlaut hún einkunnina Very good, 62,6%. Vottunin hefur mikla þýðingu fyrir EFLU, þar sem sjálfbærni er höfð að leiðarljósi í allri ráðgjöf og þjónustu fyrirtækisins. Hún endurspeglar jafnframt markvissa vinnu við að innleiða sömu áherslur í rekstri og starfsumhverfi höfuðstöðva EFLU.
Ráðgjöf EFLU í vottunarferlinu
Ráðgjöf EFLU fól meðal annars í sér aðstoð við stefnumótun og þróun verklags, gerð sönnunargagna svo sem áhættumats vegna eldhættu og heilnæmi vatns, yfirferð gagna og úttektir, auk mats á því hvernig rekstur eignarinnar uppfyllir viðmið BREEAM In-Use.
BREEAM In-Use nýtist fasteignaeigendum og rekstraraðilumsem stjórntæki til að meta stöðu bygginga, setja raunhæf markmið, forgangsraða umbótum og fylgjast með framvindu þeirra. Byggingar eru endurvottaðar á þriggja ára fresti, sem styður við áframhaldandi umbætur.
Gildi svona vottunar felst ekki síst í því að sjálfbærni er hluti af daglegri stjórnun og ákvarðanatöku um rekstur fasteignarinnar. Með kerfisbundinni nálgun verður auðveldara að sjá hvar tækifærin til umbóta liggja,fylgja þeim eftir og um leið að spara rekstrarkostnað
Eva Yngvadóttir
sérfræðingur EFLU í umhverfismálum og vottunum
Fyrir Íþöku markar vottun Lyngháls 4 upphaf markvissrar innleiðingar BREEAM In-Use staðalsins. Stefnt er að því halda vegferðinni áfram og vinna að innleiðingu og vottun BREEAM In-Use staðalsins í fleiri eignum félagsins.
