EFLA hefur fengið endurnýjaða vottun samkvæmt ISO 9001, ISO 14001 og ISO 45001. Vottanirnar staðfesta að stjórnunarkerfi EFLU uppfylla áfram alþjóðlegar kröfur á sviði gæðastjórnunar, umhverfisstjórnunar og vinnuverndar.
„Fyrir EFLU snúast ISO-vottanir fyrst og fremst um traust og virði. Viðskiptavinir, starfsfólk og samstarfsaðilar eiga að geta treyst því að EFLA vinni með markvissum og ábyrgum hætti og leiti stöðugt leiða til að gera betur“
Kristín Friðgeirsdóttir
Stjórnun - Framkvæmdastjóri
Vottanirnar styðja við samræmd og fagleg vinnubrögð, stöðugar umbætur og ábyrga starfsemi. Þær veita jafnframt viðskiptavinum og samstarfsaðilum staðfestingu á því að skilgreindum alþjóðlegum kröfum sé fylgt í starfsemi fyrirtækisins.
Vottað stjórnunarkerfi hefur verið hluti af starfsemi EFLU um árabil. EFLA hefur byggt markvisst ofan á það með áherslu á gæði, umhverfismál, vinnuvernd og örugga meðferð upplýsinga.
