EFLA er meðal viðurkenningarhafa Jafnvægisvogarinnar 2026. Viðurkenningin er ánægjuleg staðfesting á mikilvægi markvissrar vinnu að jafnrétti og jafnvægi í forystu.
Jafnvægisvogin er verkefni á vegum FKA sem hvetur vinnustaði til að stuðla að jafnrétti og auknu jafnvægi í stjórnunar- og áhrifastöðum. Viðurkenningarhafar ársins 2026 voru heiðraðir við athöfn í Hátíðasal Háskóla Íslands miðvikudaginn 14. október.
Ingibjörg Sigrún Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannauðs hjá EFLU, tók við viðurkenningunni fyrir hönd fyrirtækisins.

Viðurkenningin er EFLU hvatning til að halda áfram að skapa vinnuumhverfi þar sem ólík sjónarmið, reynsla og þekking fá að njóta sín. Jafnrétti er viðvarandi verkefni sem kallar á meðvitaðar ákvarðanir, eftirfylgni og samstarf.
Í tengslum við viðurkenninguna fær EFLA jafnframt tré að gjöf sem gróðursett verður í Jafnréttislundi FKA í Heiðmörk. Þar koma viðurkenningarhafar saman og skilja eftir sig lifandi tákn um sameiginlegt markmið verkefnisins.
EFLA fagnar viðurkenningunni og heldur áfram markvissu starfi að jafnrétti, trausti og samvinnu sem undirstöðu öflugs vinnustaðar.
