Beint í efni

Rannsóknir sem rata út á veginn

12. nóvember 2026

Woman giving a speech at a conference

Anna Rut Arnardóttir, sérfræðingur í mati á umhverfisáhrifum og leyfisveitingum hjá EFLU.

Sérfræðingar EFLU kynntu rannsóknir á sviði samgangna og innviða á 25. Rannsóknarráðstefnu Vegagerðarinnar 6. nóvember. Rannsóknirnar fjölluðu meðal annars um ferðavenjur, stauraundirstöður brúa og umhverfisáhrif vegaframkvæmda.

Ferðagögn geta sýnt hvar innviði vantar

Daði Baldur Ottósson, samgönguverkfræðingur hjá EFLU, kynnti ferðavenjukönnun sem sýnir hvernig notkun rafskúta hefur þróast frá árinu 2020. Meðalhraði ferða hefur aukist úr rúmlega 9 km/klst. í rúmlega 13 km/klst. og notkun til og frá skóla hefur fjórfaldast. Á sama tíma hefur dregið verulega úr notkun í tengslum við veitinga- og skemmtistaði.

Niðurstöður rannsóknarinnar gefa einnig vísbendingar um það hvernig byggja megi upp samgönguinnviði sem styðja þessa þróun. Notendur kalla eftir bættum innviðum og kjósa helst hjólastíga sem eru aðskildir frá annarri umferð. Hluti rannsóknarinnar snéri að því að greina ferðagögn en með þeim má sjá hvaða leiðir eru mest notaðar af rafskútunotendum og hvar skortur er á tengingum og innviðum er ábótavant.

Ferðavenjur framhaldsskólanema voru einnig skoðaðar en rúmur helmingur þeirra segir bílastæðagjöld hafa áhrif á hvernig þau ferðast. Bílstæðagjöldin geti orðið til þess að þau velji frekar aðra ferðamáta á borð við rafskútur eða almenningssamgöngur. Þetta gefur vísbendingar um hvernig hægt er að hafa áhrif á val á ferðamáta.

Brýr, vatnshlot og vegaframkvæmdir

Viðfangsefni ráðstefnunnar voru af fjölbreyttum toga og spönnuðu allt frá mannvirkjum, umferðarmálum til umhverfisrannsókna.

Andri Gunnarsson, brúarverkfræðingur hjá EFLU, fjallaði um rannsóknir á stauraundirstöðum brúa við íslenskar aðstæður. Verkefnið miðar að því að þróa traustari forsendur fyrir hönnun með því að bera saman mismunandi rannsóknar- og reikniaðferðir við mælt burðarþol staura. Niðurstöðurnar geta nýst við val á jarðvegsrannsóknum og hönnunaraðferðum og stuðlað að öruggari og hagkvæmari hönnun stauraundirstaða.

Anna Rut Arnardóttir, sérfræðingur í mati á umhverfisáhrifum og leyfisveitingum hjá EFLU, fjallaði um áhrif vegaframkvæmda á vatnshlot. Vatnshlot er hugtak yfir einingu vatns, svo sem allt það vatn sem er að finna í stöðuvatni, ám eða strandsjó. Einnig fjallaði Anna Rut um auknar kröfur um mat á slíkum áhrifum við undirbúning og leyfisveitingar framkvæmda. Áhrif geta meðal annars komið fram vegna brúargerðar, ræsa, hafnargerðar og jarðgangagerðar. Sérstaklega var fjallað um áhrif sprengiefnanotkunar og hvernig markvisst áhrifamat og viðeigandi mótvægisaðgerðir geta dregið úr hættu á neikvæðum áhrifum á vatnshlot.

Mikilvægur vettvangur

Viðburður á borð við Rannsóknarráðstefnu Vegagerðarinnar er mikilvægur vettvangur fyrir sérfræðinga sem vinna að fjölbreyttum rannsóknum og verkefnum tengdum uppbyggingu innviða. Þar gefst tækifæri til að hittast, miðla þekkingu og reynslu og læra hvert af öðru.

Slíkt samtal skapar mikilvæga tengingu milli rannsókna og framkvæmdar og eykur líkurnar á að ný þekking nýtist í raunverulegum verkefnum og skili sér þannig út í samfélagið.

Kynntu þér nánar ráðgjöf EFLU í samgöngumálum