Beint í efni

Málþing um framtíð skólphreins­unar á norð­ur­slóð­um

7. september 2026

Fréttir
people watching a lecture

Hvaða áhrif hefur fráveituvatn á viðkvæm vistkerfi norðurslóða? Þetta var meginspurningin á alþjóðlegri málþingi hjá EFLU í lok ágúst þar sem saman komu sérfræðingar frá fjórum löndum til að kynna fyrstu niðurstöður rannsókna á hreinsun fráveituvatns, snefilefnum og sýklalyfjaónæmi í köldu loftslagi. 

Sérfræðingar frá Íslandi, Finnlandi, Svíþjóð og Danmörku komu saman á málþingi í höfuðstöðvum EFLU tengdu verkefninu ArcticSewlution. Á málþinginu voru ræddar nýjar rannsóknaniðurstöður um hreinsun fráveituvatns í samfélögum á norðurslóðum og áhrif þess á viðtaka.

Verkefnið, sem hlaut styrk úr Interreg Northern Periphery and Arctic (NPA) áætluninni auk þess að vera samfjármagnað af Evrópusambandinu, sameinar vísindafólk, stjórnendur fráveita, opinbera aðila og verkfræðinga með það að markmiði að þróa þekkingu og lausnir sem henta krefjandi aðstæðum í köldu loftslagi.

Fyrirlesarar málþingsins komu fráháskólanum í Oulu í Finnlandi, Danmarks Tekniske Universitet (DTU) í Danmörku, Luleå tekniska universitet (LTU) í Svíþjóð, veitufyrirtækinu Lumire i Luleå, Svíþjóð, Háskóla Íslands og Umhverfisstofnun. Málstofan var vel sótt og meðal þátttakenda voru fulltrúar veitufyrirtækja, sveitarfélaga og fyrirtækja víðs vegar að af landinu.

Nýjar niðurstöður kynntar

Á málþinginu var sjónum beint að stöðu fráveitumála á Íslandi, Grænlandi, í Finnlandi og Svíþjóð, auk þess sem fjallað var um tæknilausnir, umhverfisáhrif og þær áskoranir sem samfélög á norðlægum svæðum standa frammi fyrir þegar kemur að hreinsun skólps. Sérstök áhersla var lögð á þrjú lykilviðfangsefni verkefnisins: virkni hreinsunar, snefilefni og sýklalyfjaónæmi. Meðal hápunkta dagsins voru kynningar á fyrstu niðurstöðum rannsóknanna á snefilefnum og sýklalyfjaónæmi í fráveitukerfum. Slíkar rannsóknir eru sífellt mikilvægari þar sem aukin þekking á örmengun og útbreiðslu sýklalyfjaónæmis getur stutt við markvissari ákvarðanatöku um vernd vatnaumhverfis og þróun sjálfbærra hreinsilausna.

People watching a lecture

Þekking sem styður sjálfbærari fráveitulausnir

Verkefnið ArcticSewlutions er dæmi um það hvernig þverfaglegt samstarf yfir landamæri getur skapað nýja þekkingu sem nýtist sveitarfélögum, rekstraraðilum fráveita og stjórnvöldum við að bregðast við umhverfisáskorunum framtíðarinnar. EFLA hefur gegnt mikilvægu hlutverki í verkefninu, en sérfræðiþekking okkar á sviði fráveitukerfa hefur spilað veigamikinn þátt í rannsókninni og stutt við þær niðurstöður sem kynntar voru ásamt alþjóðlegum samstarfsaðilum á málþingsins.

Málþingið lauk með vinnustofu þar sem þátttakendur ræddu næstu skref og möguleg tækifæri til að styrkja þróun sjálfbærra fráveitulausna fyrir samfélög á norðurslóðum. Þekking sem verður til innan ArcticSewlutions mun stuðla að betri skilningi á áhrifum fráveitu á viðkvæma viðtaka og styðja við þróun skilvirkari og sjálfbærari lausna til framtíðar.

Málþing um framtíð skólphreinsunar á norðurslóðum