Alþjóðleg ráðstefna í Reykjavík

22.07.2014

Fréttir

EFLA verkfræðistofa ásamt Norrænum samstarfsvettvangi um vistferilsgreiningar (NOR LCA), Landsneti, Landsvirkjun, Vistbyggðarráði, Háskóla Íslands, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Danmarks Tekniske Universitet (DTU) standa að alþjóðlegri ráðstefnunni daganna 2. - 3. október 2014 í Reykjavík.

Alþjóðleg ráðstefna í Reykjavík

Yfirskrift ráðstefnunnar árið 2014 er:

"Global Sustainability Challenges - Northern Approaches"

Í boði stendur að senda inn útdrátt fyrir erindi eða kynningu á ráðstefnuna og er lokafrestur til að skila inn útdráttum 1. ágúst 2014.

Opnað hefur verið fyrir skráningu á ráðstefnuna fyrir þátttakendur á vefsíðu ráðstefnunnar (www.norlca.org)

Markmið ráðstefnunnar er að skapa öflugan þekkingargrunn, styrkja umræðuna um vistferilshugsun og örva þekkingartengsl á Norðurslóðum. Ráðstefnugestum gefst kostur á að sækja áhugaverða fyrirlestra, vinnustofur og markaðstorg, sem og umræðufundi og veggspjaldakynningar þar sem fjallað verður m.a. um:

  • Vistferilshugsun (Life Cycle thinking)
  • Vistferilsgreiningu (LCA)
  • Vistferilskostnaðargreiningu (LCC)
  • Vistspor
  • Sjálfbærnimat
  • Vistferilshugsun í stjórnun og stefnumótun
  • Miðlun vistferilshugsunar með áherslu á eftirfarandi greinar þjóðlífsins.
  • Orkumál
  • Skipulag og byggingar
  • Úrgangsmál
  • atvælaframleiðslu
  • iskveiðar/fiskeldi
  • Samgöngumál, flutningar og rafbílavæðingu
  • Auðlindastjórnun á Norðurslóðum
  • Menntun og læsi

Frekari upplýsingar um ráðstefnuna má finna á slóð ráðstefnunnar

slóð ráðstefnunnar