Andri Gunnarsson, sérfræðingur hjá EFLU, var meðal fyrirlesara á NVF Bridges Seminar 2025 sem haldið var í Turku í Finnlandi dagana 10.–11. september. Á viðburðinum komu saman brúarsérfræðingar frá öllum Norðurlöndunum til að miðla þekkingu og ræða sjálfbærni í hönnun og rekstri brúa. Andri hélt tvö erindi á ráðstefnunni, annað í eigin nafni og hitt í samstarfi við Guðmund Val Guðmundsson hjá Vegagerðinni.
Endurnýting brúarhluta
Í fyrra erindinu fjallaði Andri um áskoranir sem fylgja endurnýtingu eldri brúarhluta í nýjum mannvirkjum. Hann tók dæmi um verkefni þar sem reynt hafði verið að nýta meðal annars eldri stálbita, undirstöður og burðarhluta í nýjar brýr.
Endurnýting getur dregið úr umhverfisáhrifum og kolefnisspori nýrra mannvirkja en hún getur einnig haft í för með sér ákveðnar hindranir sem þarf að yfirstíga. Sem dæmi um hindranir má nefna tæknilegar kröfur og hvort endurnýtt efni standist þær kröfur, aukinn kostnað vegna endurnýtingar, óvissu varðandi kostnað verkefnisins, óvissu um burðarþol og mögulega styttri endingu efnis sem verið er að endurnýta.

Mynd | Risto Kiviuoma.
Reiknivél fyrir kolefnisspor innviða
Seinna erindi Andra snerist um nýja íslenska reiknivél fyrir kolefnisspor innviða sem ber heitið LOKI og var þróuð af EFLU í samvinnu við Vegagerðina. Andri og Guðmundur Valur kynntu þróun, innleiðingu og hagnýtingu á reiknivélinni sem var formlega kynnt í júlí 2024. Reiknivélin byggir á sambærilegum verkfærum og þeim sem notuð eru í Noregi, Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi. LOKI gerir aðilum kleift að meta kolefnisspor hönnunar og framkvæmda á öllum stigum innviðaverkefna. Markmiðið er að styðja við markvissari ákvarðanatöku í umhverfismálum og gera sjálfbærni að lykilþætti í innviðauppbyggingu.

Mynd | Southinanh Oudomphanh.
Sérfræðiþekking á umhverfisáhrifum
Sérfræðingar EFLU búa yfir mikilli sérfræðiþekkingu á sviði sjálfbærrar brúarhönnunar og loftslagsbókhalds. Erindi Andra töluðu beint inn í mikilvæga alþóðlega umræðu um möguleikana á að draga úr umhverfisáhrifum innviðaverkefna og nýta betur þau efni og mannvirki sem þegar eru til staðar.
