Beint í efni

Anne Bruun Hansen nýr svæð­is­stjóri EFLU á Suðurlandi

11. júní 2026

Fréttir
Kona fyrir framan viðarpanel

Anne Bruun Hansen Nýr svæðisstjóri EFLU á Suðurlandi

EFLA hefur gert skipulagsbreytingar á Suðurlandi sem miða að því að styrkja starfsemi fyrirtækisins, efla þjónustu í nærumhverfinu og nýta þau tækifæri sem svæðið býður upp á. Hluti af þessum breytingum er ráðning Anne Bruun Hansen í starf svæðisstjóra EFLU á Suðurlandi, þar sem hún tekur við starfinu af Friðþóri Sófusi Sigurmundssyni.

Anne hefur starfað hjá EFLU á Suðurlandi í rúman áratug og gegnt lykilhlutverki í fjölbreyttum verkefnum. Hún er með meistaragráðu í arkitektúr frá ETH í Zürich og hefur síðustu ár leitt teymi skipulagsmála á svæðinu. Hún býr yfir víðtækri þekkingu á starfsemi, verkefnum og viðskiptavinum EFLU á Suðurlandi sem nýtist vel í nýju hlutverki.

Áhersla á þjónustu og samstarf við nærumhverfið

Í starfi svæðisstjóra mun Anne leggja áherslu á áframhaldandi öfluga þjónustu við viðskiptavini og náið samstarf við fyrirtæki, sveitarfélög og aðra hagaðila á svæðinu. Markmiðið er að styrkja stöðu EFLU enn frekar á Suðurlandi og byggja á þeim sterka grunni sem þegar hefur verið lagður.

„Ég tek við þessu hlutverki með miklum metnaði og hlakka til að leiða áfram öflugt starf EFLU á Suðurlandi. Þar starfa sérfræðingar með dýrmæta þekkingu og fjölbreytta reynslu og ég sé mikil tækifæri til að efla okkur enn frekar í nánu samstarfi við viðskiptavini og samstarfsaðila,“ segir Anne Bruun Hansen.

Tæknileg þróun og aukin tækifæri til vaxtar

Samhliða breytingunni tekur Friðþór Sófus Sigurmundsson við nýju hlutverki innan EFLU þar sem hann mun leiða frekari uppbyggingu og þróun á Kort.is, hugbúnaðarlausn fyrirtækisins fyrir gagnahýsingu og gagnvirka kortasjá. Lausnin styður við aðgengi að landupplýsingum og fellur vel að stefnu EFLU um nýsköpun og tæknilega þróun.

„Með þessari breytingu styrkir EFLA forystu sína á Suðurlandi og skapar góðan grunn fyrir áframhaldandi vöxt og enn betri þjónustu við viðskiptavini og samstarfsaðila á svæðinu“ segir Kristín Friðgeirsdóttir framkvæmdasjóri EFLU.

EFLA rekur starfsstöðvar á Selfossi, Hellu og í Vestmannaeyjum þar sem öflug teymi sérfræðinga vinna að fjölbreyttum verkefnum á sviði verkfræði, skipulags og hönnunar.

EFLA - Anne Bruun Hansen nýr svæðisstjóri EFLU á Suðurlandi