Auglýst eftir umsóknum í Samfélagssjóð EFLU

03.10.2019

Fréttir
A bird eye view of colorful coastal city with some Icelandic text

Auglýst er eftir umsóknum í Samfélagssjóð EFLU.

Samfélagssjóður EFLU veitir styrki til jákvæðra og uppbyggjandi verkefna sem nýtast samfélaginu. Auglýst er eftir umsóknum í sjóðinn og er umsóknarfrestur til 15. október næstkomandi.

Auglýst eftir umsóknum í Samfélagssjóð EFLU

Markmið samfélagssjóðs EFLU er að styðja við framtak einstaklinga og hópa, sem stuðla að farsælli þróun samfélagsins, lífsgæðum og fjölbreyttu mannlífi.

Fjölmörg áhugaverð verkefni hafa fengið fjárstyrk úr sjóðnum og fengið þannig brautargengi. Tvisvar á ári fer fram úthlutun úr sjóðnum og er samfélagssjóðnum einkum ætlað að styrkja við verkefni á eftirtöldum sviðum:

  • Menntamál
  • Menning og listir
  • Íþrótta- og æskulýðsmál
  • Umhverfismál
  • Rannsóknir
  • Góðgerðar- og félagsmál

Umsóknir þurfa að berast í gegnum vefsíðu EFLU fyrir 15. október og verður þeim öllum svarað.

Nánar um samfélagssjóð EFLU.