HECLA, dótturfélag EFLU í Frakklandi, fagnaði 25 ára starfsemi fyrr í þessum mánuði. Afmælið markar aldarfjórðung af samstarfi íslenskra og franskra sérfræðinga í verkefnum innan orkugeirans í Frakklandi. Í tilefni afmælisins bauð HECLA til afmælisviðburðar þar sem litið var yfir farinn veg, árangri fyrirtækisins var fagnað og það fólk sem hefur mótað starfsemina frá upphafi var heiðrað. Meðal gesta var María Mjöll Jónsdóttir sendiherra Íslands í Frakklandi.
Þekking þvert á landamæri
Samstarf Frakklands og Íslands á sviði orkuflutninga má rekja allt til sjöunda áratugs síðustu aldar þegar franskir verkfræðingar tóku virkan þátt í uppbyggingu Búrfellslínu 1 á Íslandi. Með árunum styrkist samstarf milli landanna, dýrmæt þekking varð til og traust myndaðist milli einstaklinga og fyrirtækja beggja vegna landamæranna.
Árið 1999 urðu mikil óveður í Frakklandi sem olli miklum skemmdum á orkuflutningskerfum. Vegna samstarfsins og traustsins sem hafði myndast árin á undan milli landanna tveggja gaf auga leið að nýta þekkingu Íslendinganna við lagfæringar, en veðurskilyrði á Íslandi eru mjög krefjandi og þekking á orkuflutningsmálum hérlendis hefur mótast af því.
Í kjölfarið, eða árið 2001, var HECLA stofnuð sem félag íslenskra og franskra sérfræðinga á sviði orkuflutningsmála. Stofnun HECLU hafði það að markmiði að sameina sérþekkingu á sviði vatnsafls, jarðvarma og raforkuflutnings ásamt því að mæta vaxandi þörf fyrir uppbyggingu raforkumannvirkja í Frakklandi. Árið 2003 gerði HECLA mikilvægan rammasamning við franska flutningskerfið (RTE) og hefur síðan verið leiðandi á sviði raforkuflutninga í Frakklandi.
Vöxtur samhliða síbreytilegum þörfum
Viðburðurinn var ekki aðeins tilefni til að líta um öxl og skoða hvernig þekking, samvinna og traust hafa lagt grunn að þeim árangri sem fyrirtækið hefur náð, heldur einnig til að horfa fram á veginn og ræða tækifæri og framþróun hjá HECLU.
Sérfræðingar frá HECLU héldu kynningar þar sem gestir fengu innsýn í fjölbreytt verkefni fyrirtækisins. Verkefnin sýndu bersýnilega fram á færni HECLU til að vaxa samhliða síbreytilegum þörfum samfélagsins með því að styðjast við afburðar sérfræðiþekkingu og náið samstarf.
Starfsfólk heiðrað fyrir hollustu og framlag
Sérstakur hluti dagskrárinnar var helgaður starfsfólki sem hefur gegnt lykilhlutverki í sögu fyrirtækisins. Catherine Mesme hlaut viðurkenningu fyrir 25 ára starf hjá HECLU, en Christophe Baldet og Guy Joubert voru heiðraðir fyrir 20 ára starf. Viðurkenningarnar voru áminning um að árangur fyrirtækisins byggir ekki aðeins á tæknilegri sérþekkingu heldur einnig á langtíma hollustu og framlagi starfsfólks.

Frá vinstri Catherine Mesme, skrifstofu- og fjármálastjóri, Christophe Baldet, rekstrarstjóri og Guy Joubert, tæknistjóri.
Varanleg verðmæti
Saga HECLU varpar ljósi á það hvernig þekkingarmiðlun, sameiginleg framtíðarsýn og traust samstarf geta skapað varanleg verðmæti þvert á landamæri. Það sem hófst sem samstarfsverkefni íslenskra og franskra aðila fyrir aldarfjórðungi hefur lagt grunn að öflugu fyrirtæki sem hefur sterkar rætur í báðum löndum og skipar mikilvægan sess innan EFLU-samstæðunnar. Með þennan grunn í farteskinu er HECLA vel í stakk búin til að takast á við áskoranir framtíðarinnar.
1 / 7
2 / 7
3 / 7
4 / 7
5 / 7
6 / 7
7 / 7
