EFLA tekur þátt í Loftslagsdeginum 2025 sem haldinn verður í Norðurljósasal Hörpu á morgun, miðvikudaginn 1. október. Ágústa Steinunn Loftsdóttir, eðlisfræðingur á sviði orku hjá EFLU, verður með erindi á ráðstefnunni. Þema loftslagsdagsins þetta árið er: Framtíð í jafnvægi – Hvernig finnum við jafnvægi milli náttúru og aðgerða?
Erindi um árangur aðgerða
Ágústa Steinunn flytur erindi undir yfirskriftinni Árangur aðgerða – Eigum við erindi sem erfiði? Þar veltir hún upp þeirri mikilvægu spurningu hvort þær aðgerðir sem gripið hefur verið til í loftslagsmálum skili raunverulegum árangri og hvernig við getum metið áhrif þeirra á markvissan og gagnsæjan hátt.
Erindið er hluti af dagskrárliðnum Er spenna í orkuskiptum?, þar sem fjallað verður um stöðu og framtíð orkuskipta á Íslandi og hvernig þau tengjast loftslagsmarkmiðum næstu ára.
Um Loftslagsdaginn
Loftlagsdagurinn er helsti vettvangur ársins fyrir faglega umræðu um loftslagsmál og sjálfbærni þar sem fulltrúar úr atvinnulífi, stjórnsýslu, vísindasamfélagi og almenningi koma saman til að ræða leiðir að framtíð í jafnvægi. L Dagskráin, sem stendur yfir frá kl 9 – 14 í Hörpu og í beinu streymi, spannar fjölbreytt erindi og samtöl um málefni á borð við losun gróðurhúsalofttegunda, samspil skipulags og loftslagsstefnu, líffræðilega fjölbreytni, orkuskipti, ferðamennsku, hringrásarhagkerfi og lífsgæði.
