EFLA AS í nýju húsnæði

15.07.2016

Fréttir
Fjallendi með snjóbreiðum á Íslandi, texti þar sem stendur 'Vantar mynd'

EFLA AS, dótturfyrirtæki EFLU í Noregi skrifaði í vikunni undir nýjan leigusamning til fimm ára.

EFLA AS í nýju húsnæði

Með þessum samningi mun skrifstofa EFLU í Osló flytja í nýtt og stærra skrifstofuhúsnæði í október. Nær tvöföldun er á húsnæðisstærðinni frá því sem áður var og verður hægt að koma fyrir allt að 40 starfsstöðvum.

Það sem af er þessu ári hafa verið ráðnir inn 5 nýjir starfsmenn til EFLU AS og eru starfsmenn nú 18 talsins. Auk áframhaldandi uppbyggingar á orkutengdum verkefnum hjá EFLU AS er stefnt á að byggja upp önnur fagsvið hjá EFLU AS til að þjónusta markaðinn.