Beint í efni

EFLA fagnar 25 ára starfsemi í Póllandi

30. júní 2026

Blogg
EFLA_Polland

EFLA í Póllandi fagnar 25 ára starfsemi

EFLA fagnaði nýlega 25 ára afmæli starfsemi fyrirtækisins í Póllandi með hátíðlegri dagskrá í Łódź. Þar hefur fyrirtækið byggt upp öfluga sérþekkingu á sviði raforkuflutninga og gegnir skrifstofan mikilvægu hlutverki í alþjóðlegri starfsemi EFLU á því sviði. 

Í Łódź starfar öflugt teymi sérfræðinga sem sinnir ráðgjöf og hönnun tengdri tengivirkjum og háspennulínum auk verkefna sem snúa að tengingum orkukerfa við vindorku og aðra endurnýjanlega orkugjafa.

Afmælið markaði mikilvæg tímamót og var jafnframt tækifæri til að efla tengsl innan samstæðunnar. Hópur starfsfólks frá Íslandi og öðrum dótturfélögum EFLU kom saman í Póllandi og fagnaði áfanganum. Um var að ræða tveggja daga viðburð með fjölbreyttri dagskrá þar sem markmiðið var að kynnast starfseminni nánar og taka þátt í umræðum um framtíðina.

Fyrri dagur viðburðarins fór fram í stórri vísindamiðstöð í Łódź þar sem áhersla var lögð á stefnumótun og sameiginlega sýn samstæðunnar. Þar var meðal annars fjallað um þróun á sviði raforkuflutninga, uppbyggingu innviða, mannauðsmál og hlutverk nýrrar tækni, þar á meðal gervigreindar, í verkfræðiráðgjöf. 

Seinni daginn tók starfsfólk EFLU í Łódź á móti hópnum á skrifstofu fyrirtækisins þar sem fagteymi kynntu verkefni sín og sérsvið. Heimsóknin gaf góða innsýn í daglegt starf og undirstrikaði þann faglega styrk sem hefur byggst upp á pólsku starfsstöðinni.  

Hátíðin náði hámarki með kvöldverðarboði þar sem starfsfólk, valdir samstarfsaðilar og fulltrúar nærsamfélagsins hittust og fögnuðu saman. Meðal gesta var Friðrik Jónsson sendiherra Íslands í Póllandi.

Map_projects_in_Poland

Meðfylgjandi mynd sýnir kort af verkefnum sem unnin hafa verið á pólskum markaði undanfarin 25 ár, en á kortinu má bersýnilega sjá hve víða þekking sérfræðinga EFLU hefur ratað þegar kemur að raforkuflutningum í Póllandi.

Sérfræðiþekking byggð á reynslu

Upphaf starfsemi EFLU í Póllandi má rekja til ársins 2001 þegar fyrirtækið tók þátt í tilboðsgerð sem skilaði fyrsta stóra verkefni fyrirtækisins í Póllandi. Á árunum 2003–2006 hannaði EFLA háspennulínuna Kromolice–Pleviska sem er um 31 km löng lína með fjórum rásum á hverju mastri (2x400 kV og 2x220 kV).

Aðstæður voru krefjandi og meðal annars þurfti að leggja línuna yfir hávaxinn skóg, taka þurfti tillit til strangra hæðartakmarkana nærri flugvelli og tryggja öryggi í nálægð við íbúðabyggð. Jafnframt voru gerðar ríkar kröfur um hljóðvist og raf- og segulsvið línanna. Hæstu möstur línunnar náðu 72 metra hæð og til þessa verks voru hannaðar sex mismunandi mastragerðir.

Verkefnið var unnið í samstarfi við alþjóðlega verktaka og markaði upphaf tengsla EFLU við hagaðila sem áttu eftir að styrkjast á næstu árum.

Egill_Thorsteins

Hér stendur Egill Þorsteins sérfræðingur í raforkumannvirkjum hjá EFLU á Íslandi í anddyri skrifstofu EFLU í Łódź við hliðina á sambærilegu mastri og notuð voru Kromolice–Pleviska línunni

Á þeim 25 árum sem liðin eru frá þessu fyrsta stóra verkefni hefur EFLA í Póllandi byggt upp trausta stöðu á markaðnum á sviði orkuinnviða og raforkuflutnings. Starfsemin í Łódź endurspeglar þá alþjóðlegu þróun sem hefur átt sér stað hjá EFLU, þar sem sérfræðiþekking og reynsla frá Íslandi nýtist innviðum víða um Evrópu.

Afmælishátíðin var því ekki aðeins tilefni til að fagna liðnum áföngum heldur einnig til að horfa fram á veginn og styrkja enn frekar samstarf þeirra alþjóðlegu teyma sem vinna saman að uppbyggingu orkukerfa framtíðarinnar.

Skoða orkumál hjá EFLU
EFLA fagnar 25 ára starfsemi í Póllandi