EFLA framúrskarandi fimm ár í röð

05.02.2015

Fréttir
Fjallendi með snjóbreiðum á Íslandi, texti þar sem stendur 'Vantar mynd'

EFLA verkfræðistofa hlaut viðurkenninguna fimmta árið í röð, og er eitt af aðeins 100 fyrirtækjum sem náð hafa þessum árangri öll fimm árin frá upphafi þessa mats.

EFLA framúrskarandi fimm ár í röð

Creditinfo gerir árlega fjárhagslegt styrk- og stöðugleikamat á fyrirtækjum landsins og tekur í kjölfarið saman lista yfir þau fyrirtæki sem standast hið stranga gæðamat byggt á faglegum kröfum og greiningi Creditionfo. Þau fyrirtæki sem standast kröfurnar teljast framúrskarandi að mati Creditionfo.

Ný greining Creditinfo leiðir í ljós að 577 fyrirtæki eða 1,7% af 34.000 skráðum fyrirtækjum á Íslandi standast kröfur sem framúrskarandi fyrirtæki árið 2014. EFLA verkfræðistofa er í þessum hópi, fimmta árið í röð, og er eitt af aðeins 100 fyrirtækjum sem náð hafa þessum árangri öll fimm árin frá upphafi þessa mats.

Ábyrgur rekstur, fjárhagslegur styrkur og stöðugleiki í rekstri skipta fyrirtæki, viðskiptavini þeirra, atvinnulíf og samfélagið í heild miklu máli. EFLA er því mjög stolt af árangri fyrirtækisins og þeirri viðurkenningu að teljast framúrskarandi fyrirtæki. Þessi árangur næst með frábæru starfsfólki fyrirtækisins og traustu og árangursríku samstarfi við okkar góðu viðskiptavini.

EFLA vill nota tækifærið og þakka viðskiptavinum fyrirtækisins á Íslandi og erlendis það traust sem fyrirtækinu hefur verið sýnt, og starfsmönnum afbragðs framgöngu. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs.

Skilyrðin eru:

  • hefur skilað ársreikningi til RSK síðastliðin þrjú ár
  • líkur á alvarlegum vanskilum eru minni en 0,5%
  • rekstrarhagnaður (EBIT) hefur verið jákvæður þrjú ár í röð
  • ársniðurstaða hefur verið jákvæð þrjú ár í röð
  • eiginfjárhlutfall 20% eða meira þrjú ár í röð
  • eignir hafa numið 80 milljónum eða meira þrjú ár í röð
  • framkvæmdastjóri er skráður í hlutafélagaskrá
  • fyrirtækið er virkt skv. skilgreiningu Creditinfo