EFLA kom að hönnun fyrsta íbúðarhússins úr íslenskum við. Sérfræðingar EFLU sáu um hönnun burðarvirkis í fyrsta íbúðarhúsinu sem reist er alfarið úr íslenskum við. Verkefnið markar mikilvægt skref í nýtingu innlendra auðlinda og þróun sjálfbærrar byggðartækni.
Nýtt íbúðarhús sem rís nú í Fljótsdal verður fyrst sinnar tegundar sem alfarið eru byggt úr íslenskum við. Timburhúsið markar tímamót í þróun byggingariðnaðar á Íslandi og undirstrikar möguleika innlendra byggingarefna í sjálfbærri mannvirkjagerð. Verkefnið byggir á frumkvæði þar sem nytjaviður úr íslenskum skógum er nýttur til fulls í byggingu nútímalegs íbúðarhúss. Auk burðarvirkisins verður notast við íslenskt timbur í veggklæðningar að innan og utan, parket á gólfum og í smíði glugga og hurða. Viðurinn sem notaður er í burðarvirki hússins eru sitkagrenisbolir sem fengust úr skóginum sem felldur var í Öskjuhlíð og var sagaður í efnivið af Skógarafurðum í Fljótsdal.
Ný nálgun í hönnun með íslenskum við
Sérfræðingar EFLU komu að verkefninu með hönnun burðarvirkis hússins. Í því fólst að nota lausnir aðlagaðar að íslensku timbri, sem frábrugðið er hefðbundnu innfluttu timbri að stærð og styrkleika. Krafðist þetta annars konar nálgunar í hönnun, þar sem íslenskt timbur býður ekki upp á þá þversniðsstærðir sem almennt er notaðar, til að mynda í þakvirki og milligólfum. Ekki er framleiddur íslenskur krossviður, og því þurfti að útfæra stífingu hússins með skástífum í stað krossviðs, til að tryggja stífleika og stöðugleika hússins.
Burðarviðurinn var sjónflokkaður samkvæmt ÍST INSTA 142:2009 í flokk T1, með einkennandi beygjustyrk 18 N/mm2. Til viðmiðunar er algengasti burðarviðurinn sem seldur er í íslenskum byggingarvörurverslunum með einkennandi beygjustyrk 24 N/mm2, sem hefur nokkur áhrif á hönnunina.
Áhersla á sjálfbærni og framtíðarsýn
Verkefnið er hluti af aukinni áherslu á sjálfbærni, kolefnisspor bygginga og nýtingu innlendra auðlinda. Með aukinni skógrækt og þekkingu á eiginleikum íslensks viðar skapast reynsla og ný tækifæri fyrir byggingariðnaðinn til að draga úr innflutningi byggingarefna og efla hringrásarhagkerfið.
1 / 3
2 / 3
3 / 3
