EFLA hefur gert samning við Landsvirkjun um eftirlit með framkvæmdum við stækkun Sigöldustöðvar, sem og endurbætur og viðhald tengd verkefninu. Verkefnið er liður í að styrkja raforkukerfi landsins og auka sveigjanleika þess með aukinni framleiðslugetu á einu af mikilvægustu vatnsaflsvirkjunum landsins.
Framkvæmdir við stækkun Sigöldustöðvar eru hafnar og mun EFLA hafa eftirlit með framkvæmdum yfir allt framkvæmdatímabilið sem áætlað er að ljúki árið 2029.
Verkefnið felur meðal annars í sér viðbyggingu við núverandi stöðvarhús, uppsetningu fjórðu vélasamstæðu og lagningu nýrrar þrýstipípu. Þá verður frárennslisskurður næst stöðinni breikkaður. Að framkvæmdum loknum mun uppsett afl stöðvarinnar aukast úr 150 MW í 215 MW.
Lesa má nánar um stækkun Sigöldustöðvar á vef Landsvirkjunar.
Verkefnið kallar á fjölbreytta þekkingu á sviði mannvirkja, framkvæmdaeftirlits, gæða- og öryggismála og er meðal stærri verkefna sem unnið er að á sviði orkuinnviða hér á landi um þessar mundir. EFLA mun þar gegna mikilvægu hlutverki við að tryggja faglega eftirfylgni framkvæmdarinnar og stuðla að því að uppbyggingin skili þeim ávinningi sem henni er ætlað fyrir íslenskt raforkukerfi. EFLA mun vinna verkefnið í nánu samstarfi við Multiconsult.
„Við erum Landsvirkjun afar þakklát fyrir það traust sem felst í að fela EFLU eftirlit með þessari mikilvægu framkvæmd. Stækkun Sigöldustöðvar er stórt og samfélagslega mikilvægt verkefni sem mun styrkja íslenskt raforkukerfi til framtíðar. Við hlökkum til samstarfsins og erum spennt að hefjast handa og leggja okkar af mörkum til að tryggja örugga, vandaða og farsæla framkvæmd samfélaginu til góða,“ segir Steinþór Gíslason, sviðsstjóri orkusviðs hjá EFLU.
