Starfsfólk EFLU heimsótti á dögunum Stokkhólm og Kaupmannahöfn með það að markmiði að hitta háskólanema í verk- og tæknitengdum greinum. Heimsóknirnar eru mikilvægur liður í að styrkja tengsl við nemendur, kynna starfsemi félagsins og sýna EFLU sem spennandi vinnustað, en EFLA heldur úti skrifstofum bæði í Svíþjóð og Danmörku.
Gott samtal
Sviðsstjórar fagsviða EFLU, Helga J. Bjarnadóttir, Ólafur Ágúst Ingason, Skúli Björn Jónsson og Steinþór Gíslason, kynntu starfsemi og verkefni EFLU, auk þess að taka þátt í innihaldsríkum samræðum við nemendur um tækifæri í verkfræði og tæknigreinum. Þá kynnti Yrsa Guðrún Þorvaldsdóttir, fulltrúi mannauðsteymis, EFLU sem vinnustað og slegið var á létta strengi með laufléttu quiz-i sem vakti mikla lukku.

Heimsóknirnar heppnuðust afar vel og var áhugi nemenda á starfsemi EFLU og tækifærum innan fyrirtækisins greinilegur. Heimsóknir sem þessar eru mikilvægur vettvangur til að ræða við framtíðarstarfsfólk og til að heyra hvaða hugarðefni og áskoranir nemendur í tengdum fögum takast helst á við.
Starfsfólk EFLU þakkar þeim sem mættu og hlakkar til að fylgjast með nemendum á Norðurlöndunum í framtíðinni.

