Beint í efni

EFLA hlýtur jafn­rétt­is­vott­un FKA árið 2025

16. október 2025

Fréttir
Hópmynd af fólki í sal.

Fulltrúar þeirra fyrirtækja sem fengu vottunina árið 2025.

EFLA hlaut Jafnréttisvottun Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) fyrir árið 2025. Vottunin er veitt fyrirtækjum sem sýna í verki að þau leggja áherslu á jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar. Í framkvæmdarstjórn EFLU er kynjahlutfallið jafnt, þar sitja nú fjórar konur og fjórir karlar.

Kona með viðurkenningarskjal.

Ingibjörg Sigrún Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannauðs, tók við viðurkenningunni fyrir hönd EFLU.

Skuldbinding til jafnréttis og þátttaka í Jafnvægisvoginni

EFLA hefur verið virkur þátttakandi í verkefni Jafnvægisvogar FKA frá árinu 2021 og vill vera í fremstu röð þegar kemur að jafnrétti í atvinnulífinu. Fyrirtækið hefur um langt skeið unnið að því að draga úr kynjamun og hvatt konur sérstaklega til að taka að sér aukna ábyrgð.

Viðurkenningin var afhent á hátíðlegri athöfn í Hátíðarsal Háskóla Íslands þann 9. október og var það í sjöunda sinn sem viðurkenningarhátíð Jafnvægisvogar fer fram. Fyrir hönd EFLU tók Ingibjörg Sigrún Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannauðs, við viðurkenningunni og gróðursetti jafnframt tré í Jafnréttislundi FKA í Heiðmörk, táknrænt framlag sem undirstrikar skuldbindingu við jafnrétti og sjálfbærni.

Viðurkenningarathöfn FKA

Alls tóku 128 stjórnendur við viðurkenningu á athöfninni, sem undirstrikar vaxandi áhuga og skuldbindingu íslenskra fyrirtækja við aukið jafnrétti í atvinnulífinu. Jafnvægisvogin var formlega sett á laggirnar árið 2018 með það að markmiði að jafna hlutfall kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga. Viðurkenning hefur verið veitt árlega til aðildarfélaga Jafnvægisvogarinnar sem náð hafa settum viðmiðum, frá árinu 2019.

Hægt er að kynna sér Jafnvægisvog FKA nánar hér.

Kona að gróðursetja tré.

Ingibjörg Sigrún gróðursetti tré í Jafnréttislundi FKA í Heiðmörk.

EFLA - EFLA hlýtur jafnréttisvottun FKA árið 2025