EFLA kemur að skipulagi á stórtónleikum í Kórnum

21.08.2014

Fréttir
Fjallendi með snjóbreiðum á Íslandi, texti þar sem stendur 'Vantar mynd'

Stórtónleikar Justin Timberlake fara fram í Kórnum í Kópavogi sunnudaginn 24. ágúst næstkomandi. EFLA verkfræðistofa kemur að undirbúningi tónleikanna en nokkur reynsla er innan EFLU þegar kemur að stórviðburðum sem þessum.

EFLA kemur að skipulagi á stórtónleikum í Kórnum

Aðkoma EFLU að tónleikunum er eftirfarandi:

  • Ráðgjöf vegna skipulags umferðar á tónleikadag
  • Hönnun, uppbygging og skipulag neyðarstjórnunar fyrir tóneikana með aðkomu lögreglu, slökkvuiliðs, heilbrigðisnefndar, tónleikahaldara, öryggisgæslu, Kópavogsbæ og rekstraraðila hússins
  • Gerð bruna- og rýmingaráætlun fyrir tónleikana en það þurfti að endurbrunahanna bygginguna með tilliti til þessa viðburðar
  • EFLA er með fulltrúa í öryggisráði vegna neyðarstjórnunar á tónleikunum
  • Gerð á sérstakri rýmingarútreikningum fyrir tóneikana til að meta nauðsynlegar flóttaleiðir og fyrirkomulag innanhúss
  • Gerð viðbragðsáætlana og öryggisuppdráttar