EFLA kom að hönnun viðleguaðstöðu fyrir Laxey

24.06.2025

Fréttir
Skip við strönd tengt við vinnslustöð í landi.

EFLA átti þátt í nýjum áfanga í starfsemi laxeldisfyrirtækisins Laxeyjar í Vestmannaeyjum, sem náðist í vikunni þegar fyrsti hópur stórseiða var afhentur samstarfsaðila Laxeyjar. Verkefnið markar upphaf að reglubundinni sölu á stórseiðum og þar með nýjum tekjustofni fyrir Laxey.

Öryggi og skilvirkni

EFLA hafði umsjón með hönnun viðleguaðstöðu fyrir brunnbátinn sem notaður var við afhendinguna. Þar á meðal var hönnun svokallaðs akkeriskerfis sem heldur bátnum stöðugum á meðan dælingu stórseiðanna stendur. Verkefnið var unnið í nánu samstarfi við Ísfell og norsku ráðgjafastofuna Dr. Techn. Olav Olsen AS.

Viðleguaðstaðan og akkeriskerfið voru hönnuð með öryggi og skilvirkni að leiðarljósi og gegndu lykilhlutverki í því að tryggja að afhendingin færi fram á öruggan og hnökralausan hátt.

Nýr kafli í starfsemi Laxey

Afhendingin markar upphaf að tvíþættu tekjulíkani Laxey, þar sem fyrirtækið hyggst samhliða framleiðslu á markaðslaxi nýta hluta af framleiðslugetu sinni til ræktunar og sölu á stórseiðum til annarra laxeldisfyrirtækja. Með þessu skapast aukinn sveigjanleiki í rekstri og tekjum Laxeyar.

Dælingin fór fram beint úr stórseiðahúsi Laxeyjar yfir í brunnbátinn Ronja Tind eftir margra mánaða hönnunar- og undirbúningsvinnu. Staðsetning Laxeyjar í Vestmannaeyjum veitir náttúrulegt skjól og greiðan aðgang að siglingaleiðum sem gerir afhendingar bæði innanlands og til útflutnings sérstaklega hagkvæmar.

Með því að afhenda stórseiði til annarra framleiðenda stuðlar Laxey að bættum líffræðilegum árangri í virðiskeðjunni, styttri viðveru í sjó og auknu öryggi fyrir samstarfsaðila.