FÉLAGIÐ er spennandi áfangastaður á HönnunarMars í ár. Þetta er samstarfsverkefni Arkitektafélags Íslands, Félags húsgagna- og innanhússarkitekta og Félags íslenskra landslagsarkitekta, sem sameinast undir einu þaki og kynna fyrir gestum og gangandi fjölbreytileika fagfélaganna.
EFLA styður Hönnunarmars 2010
FÉLAGIÐ er lifandi miðstöð með fjölbreyttri dagskrá fyrir áhugafólk um arkitektúr og hönnun þar sem kaffihúsastemmning ræður ríkjum.
Félagið er á Höfðatorgi, Höfðatúni 2, 105 Reykjavík.
Þar er opið dagana 18.03 - 21.03 frá kl. 13.00 til 23.30.
EFLA aðstoðaði við uppsetningu Félagsins í Höfðatorgsturninum með brunatæknilegri ráðgjöf.