Beint í efni

EFLA tekur þátt á Lagarlífi

29. september 2025

Fréttir
Skip við bryggju.

EFLA verður meðal þátttakenda á ráðstefnunni Lagarlíf 2025 sem haldin verður í Silfurbergi í Hörpu dagana 30. september og 1. október. Lagarlíf er einn helsti vettvangur fagfólks í lagareldi og sjávarútvegi til að ræða áskoranir, tækifæri og nýjungar í greinunum. Á dagskrá eru fjölbreyttar málstofur um meðal annars líffræði og örverur, umhverfi og sjálfbærni, dýravelferð, gervigreind í lagareldi, framtíð landeldis, sjókvíaeldis og fleira.

Áratuga þjónusta við sjávarútveginn

Á ráðstefnunni mun EFLA kynna víðtæka þjónustu sína við lagareldis- og sjávarútvegsgeirann á kynningarsvæði Lagarlífs, en EFLA hefur í áratugi þjónustað fyrirtæki í sjávarútvegi og lagareldi. Starfsfólk EFLU verður á staðnum til að svara spurningum ráðstefnugesta og taka þátt í faglegu samtali á málstofum ráðstefnunnar.

Sérfræðingar EFLU hafa veitt alhliða ráðgjöf sem nær yfir forkönnun, viðskiptaþróun, hönnun, verkefnastjórnun og gangsetningu. Þjónustan nær einnig til mats á umhverfisáhrifum, frumhönnunar og kostnaðaráætlana.

Þá hefur starfsfólk EFLU mikla reynslu af hönnun sjódælingar, varmaendurheimtar og frárennsliskerfa, auk fiskikerja og bygginga með rafdreifingu, varaafli og sjálfvirknikerfum. Allar lausnir eru samræmdar í BIM og hannaðar með öryggi og hagkvæmni að leiðarljósi. Verkefni tengd laxeldi á landi, mjöl- og lýsisframleiðslu og rafvæðingu eru meðal þeirra sem EFLA hefur komið að, auk verkefna sem snúa að stjórnkerfum, skynjurum, sjálfvirkni og orkuskiptum.

Markmið EFLU er að skila hönnun sem tryggir rekstraröryggi og tæknilegan áreiðanleika í fiskeldi, fiskveiðum og vinnslu. Með BIM-samhæfingu og gæðahönnun er tryggð samræming hönnunar, innkaupa og framkvæmdar og lágur kostnaður. Verkefnin eru víðs vegar um landið, stór sem smá, og EFLA leggur áherslu á nærþjónustu og traust samstarf.

EFLA - EFLA tekur þátt í Lagarlífi