Einar Andresson, rafmagnsverkfræðingur, og Snævarr Örn Georgsson, umhverfisverkfræðingur, tóku nýverið þátt í alþjóðlegu ráðstefnunni Hydro 2025 fyrir hönd EFLU. Ráðstefnan er haldin árlega á vegum Aqua Media og að þessu sinni fór hún fram í borginni Thessaloniki í Grikklandi.
Erindi og kynningar
EFLA hefur í gegnum tíðina unnið náið með íslenskum orkufyrirtækjum að hönnun og undirbúningi vatnsaflsvirkjana um land allt. Snævarr og Einar sóttu fjölmörg áhugaverð erindi og nýttu tækifærið til að hitta samstarfsaðila og birgja sem hafa um árabil útvegað íslenskum orkufyrirtækjum fjölbreyttan búnað.
Á ráðstefnuna, sem stóð yfir í þrjá daga, komu sérfræðingar og fyrirtæki víðs vegar að úr heiminum sem starfa að þróun og framkvæmd verkefna tengdum nýtingu vatnsafls til framleiðslu á endurnýjanlegri orku. Boðið var upp á fjölbreytt erindi og kynningar, meðal annars um nýjustu tækni í vöktun stíflumannvirkja, þróun nýrra túrbína og nýjungar í hreinsun lóna svo fátt eitt sé nefnt. Auk fyrirlestra voru fjölmörg fyrirtæki með sýningarbása þar sem gestir gátu kynnt sér nýjustu lausnir og átt samtal við samstarfsaðila og sérfræðinga í greininni.
EFLA tók þátt í samstarfi við önnur íslensk fyrirtæki og Íslandsstofu, Green by Iceland, með sameiginlegum sýningarbás.
