Beint í efni

EFLA tók þátt í álklasaferð til Kanada

3. nóvember 2025

Fréttir
Fólk á uppstilltri mynd.

Nýlega fóru fulltrúar EFLU, Smári Guðfinnsson og Ingólfur Örn Arnarson, í ferð á vegum Álklasans til Quebec og Saguenay í Kanada. Markmið ferðarinnar var að efla samstarf milli Íslands og Kanada í áliðnaði og kynnast nýjustu þróun, rannsóknum og nýsköpun á þessu sviði.

Nýjasta tækni og þróun

Í ferðinni heimsótti hópurinn álver, rannsóknarsetur, háskóla og nýsköpunarfyrirtæki. Ferðir sem þessar styrkja tengslanet EFLU og samstarf við viðskiptavini og samstarfsaðila. Þær skapa einnig tækifæri til að læra af nýjustu tæknilausnum og framförum í iðnaðinum og gera starfsfólki kleift að vera áfram í fararbroddi þegar kemur að ráðgjöf og lausnum fyrir viðskiptavini okkar.

Áliðnaðurinn stendur frammi fyrir fjölmörgum áskorunum. Þar má nefna að draga úr kolefnisspori og bæta orkunýtingu, innleiðingu sjálfvirknivæðingar og stafrænna lausna til að auka hagkvæmni og öryggi, aukna áherslu á endurvinnslu og hringrásarhagkerfi til að nýta hráefni betur og minnka úrgang.

Fólk á uppstilltri mynd.

Með því að draga lærdóm af því sem sérfræðingar EFLU kynntust í Kanada geta þeir nýtt nýjar lausnir og þekkingu til að tryggja að EFLA haldi áfram að veita ráðgjöf sem byggir á nýjustu tækni og þróun á markaðnum.

Auk starfsmanna EFLU tóku þátt fulltrúar frá öllum íslensku álverunum, þjónustu- og ráðgjafarfyrirtækjum, Tæknisetrinu og ýmsum nýsköpunarfyrirtækjum.

EFLA - Starfsfólk EFLU tók þátt í álklasaferð til Kanada