EFLA tók þátt í sex mánaða viðskipta- og mannréttindahraðli UN Global Compact. Hraðallinn, sem fór fram frá febrúar til júlí 2025, styður fyrirtæki við að innleiða og bæta mannréttindastefnu sína í samræmi við leiðbeinandi reglur Sameinuðu þjóðanna um viðskipti og mannréttindi. Fimm íslensk fyrirtæki tóku þátt í hraðlinum að þessu sinni.
Fyrirmynd á sviði mannréttinda
„EFLA vill vera í fararbroddi þegar kemur að mannréttindum og vera öðrum fyrirtækjum til fyrirmyndar sem vilja setja ríka áherslu á mannréttindamál í verkefnavinnu og daglegum rekstri,“ segir Margrét Ásta Valdimarsdóttir, mannauðssérfræðingur og einn af fulltrúum EFLU í hraðlinum.
Auk Margrétar voru fulltrúar EFLU í verkefninu Eva Yngvadóttir og Anna Margrét Kornelíusdóttir sérfræðingar í umhverfismálum og vottunum á samfélagssviði. Þær tóku bæði þátt í staðfundum á Íslandi og í rafrænum alþjóðlegum veffundum á vegum UN Global Compact. Þar að auki var boðið upp á fjölbreytt fræðsluefni á stafrænum vettvangi. Afurð hraðalsins hjá fulltrúum EFLU voru drög að aðgerðaáætlun í mannréttindamálum fyrir starfsemi EFLU á Íslandi.
Ávinningur fyrir fyrirtækið
Þátttakan í hraðlinum veitti EFLU margvíslegan ávinning:
- Sjálfsmat á stöðu fyrirtækisins með tilliti til mannréttinda, sem gaf skýra mynd af helstu úrbótatækifærum.
- Greining og forgangsröðun áhrifa EFLU í mannréttindamálum
- Aðgerðaráætlun sem nýtist til frekari innleiðingar og samþættingar í allri starfsemi og virðiskeðju EFLU.
- Aukin innsýn í alþjóðleg viðmið, ný verkfæri til innleiðingar og öflug tengsl við önnur íslensk fyrirtæki á svipaðri vegferð.
„Þátttakan hjálpaði okkur að setja mannréttindamál í skýrara samhengi, bæði með hliðsjón af íslenskum aðstæðum og alþjóðlegum viðmiðum,“ segir Margrét Ásta. „Við höfum nú verkfærin til að samþætta mannréttindi markvissar í rekstri fyrirtækisins og búa okkur undir framtíðaráskoranir.“

EFLA bauð í lokastaðfund
Síðasta staðlota hraðalsins fór fram í húsnæði EFLU, þar sem Anna Margrét Kornelíusdóttir kynnti drög að aðgerðaráætlun fyrirtækisins. Í kjölfarið spruttu upp líflegar umræður milli þátttakenda sem deildu hugmyndum og reynslu, í takt við markmið hraðalsins um að skapa vettvang fyrir lærdóm og samráð.
Með þátttöku í hraðlinum hefur EFLA styrkt innri ferla sína, aukið þekkingu starfsfólks og byggt upp verkfærakistu sem gerir fyrirtækinu kleift að vera leiðandi á sviði mannréttinda og sjálfbærni í verkfræði- og ráðgjafargeiranum.
„Við erum stolt af því að hafa hafið þessa vegferð með góðum árangri,“ segir Margrét Ásta. „Þetta er fjárfesting sem skilar sér í sterkari innviðum, aukinni ábyrgð og traustari samskiptum við viðskiptavini, samstarfsaðila og samfélagið í heild.“
