EFLA hefur unnið stafrænan tvíbura af umhverfi Nausta í miðborg Reykjavíkur. Verkefnið er hluti af undirbúningi fyrirhugaðrar endurgerðar götu- og veitukerfa á svæðinu og er mikilvægt framlag til hönnunar- og skipulagsvinnu á svæðinu. Með nákvæmu stafrænu líkani af núverandi aðstæðum skapast sterkur grunnur fyrir áframhaldandi þróun og kynningu á endurbótunum.
Hárnákvæmt stafrænt líkan af svæðinu
Svæðið var myndað í bak og fyrir með dróna og myndir unnar í sérhæfðum hugbúnaði sem bjó til stafrænan tvíbura eða þrívíddarmódel með mikilli nákvæmni. Módelið var svo tekið inn í þrívíddarhugbúnað þar sem það var samkeyrt við hönnunargögn arkitekta. Með þessari aðferð skapast heildræn sýn á svæðið sem styður við ákvarðanatöku, hönnun og framkvæmdaáætlanir.
Verkefnið sýnir styrk EFLU á sviði stafrænnar kortlagningar, gagnavinnslu og þrívíddarhönnunar og varpar ljósi á hvernig slík tækni getur aukið gæði skipulags og framkvæmda í þéttbýli.

Mikilvægt framlag EFLU til þróunar miðborgarinnar
Stafrænn tvíburi af svæðinu er lykilframlag við undirbúning framkvæmda og þróunar miðborgarsvæða, þar sem nákvæm gögn og sjónræn framsetning stuðla að betri hönnun, skilvirkari framkvæmdum og betri heildarniðurstöðu fyrir borgarumhverfið.
Gert er ráð fyrir að þessi hluti götunnar taki miklum breytingum og hafi áhrif á upplifun íbúa af svæðinu. Í Nausunum og næsta nágrenni er að finna fjölmarga vinsæla veitingastaði, til dæmis Gaukinn, Dubliner, Fjallkonuna, Sæta svínið og Tres Locos. Gatan hefur einnig verið vettvangur fjölmennra útihátíða, þar á meðal Innipúkans um verslunarmannahelgi, og munu breytingarnar án efa hafa jákvæð áhrif á þjónustu og dagskrá á svæðinu.
Áætlað er að framkvæmdir hefjist í mars og að þeim ljúki fyrir árslok 2026.

