EFLA veitir sjö verkefnum styrk

25.06.2014

Fréttir
Fjallendi með snjóbreiðum á Íslandi, texti þar sem stendur 'Vantar mynd'

EFLA hefur úthlutað í fjórða sinn úr Samfélagssjóði sínum. Sjóðurinn var stofnaður í tilefni af 40 ára afmæli fyrirtækisins, en markmið sjóðsins er að láta gott af sér leiða í samfélaginu og veita styrki til verðugra verkefna. Samtals bárust 93 umsóknir að þessu sinni og hlutu sjö verkefni styrki.

EFLA veitir sjö verkefnum styrk

Verkefnin eru:

  1. "Hamingjan er hér... í Reykjadal" vegna sumarbúða fyrir fötluð börn
  2. Ellimálaráð Reykjavíkurprófastdæma og Ellimálanefnd Þjóðkirkjunnar vegna orlofsbúða aldraðra á Löngumýri í Skagafirði
  3. Félag heyrnalausra vegna framleiðslu á þáttunum um Tinnu Táknmálsálf
  4. Sigríður Dögg Arnardóttir vegna útgáfu á kynfræðslubók fyrir unglinga
  5. Landsamkeppni í eðlisfræði vegna farar landsliðs framhaldsskólanema á Ólympíuleika í eðlisfræði
  6. Þróunarverkefni nemenda í Háskólanum í Reykjavík vegna þátttöku í Robosub keppninni í San Diego með kafbátinn Ægi
  7. Iðnaðarsafnið á Akureyri vegna breytinga á húsnæði safnsins

Tekið er á móti umsóknum í samfélagssjóðinn allt árið en úthlutað er úr sjóðnum tvisvar á ári, að vori og hausti. Í valnefnd sitja 3 aðilar sem allir starfa hjá EFLU.

Á meðfylgjandi mynd að ofan má sjá Kolbrúnu Reinholdsdóttur frá stjórn EFLU, ásamt styrkþegum, taka á móti styrkjunum.