Beint í efni

EFLA vinnur Lífshlaupið 2026

26. mars 2026

Fréttir
Fólk í ræktinni.

EFLA sigraði í Lífshlaupinu 2026 í flokki vinnustaða með 400–799 starfsmenn, bæði í fjölda virkra daga og heildarfjölda mínútna. Þetta er þriðja árið í röð sem EFLA stendur uppi sem sigurvegari í þessum flokki.

Mikil þátttaka og sterk liðsheild

Lífshlaupið er árlegt hvatningarverkefni á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, þar sem landsmenn eru hvattir til að huga að daglegri hreyfingu. Markmið keppninnar er að virkja sem flesta til þátttöku og stuðla að bættri heilsu og vellíðan, en rannsóknir sýna að regluleg hreyfing hefur jákvæð áhrif á bæði líkamlega og andlega heilsu.

Hjá EFLU var mikil þátttaka og starfsfólk nýtti tækifærið til að auka við daglega hreyfingu með fjölbreyttum hætti. Fyrirtækið hvatti starfsfólk til að hreyfa sig saman og nýta tækifæri til hreyfingar í daglegu lífi, hvort sem um var að ræða göngu, hlaup, skíðaferðir, fjallgöngur eða einfalda hreyfingu yfir vinnudaginn.

Kona með verðlaun.

Heilsueflandi vinnustaður

EFLA leggur áherslu á að hluta vel að andlegri, líkamlegri og félagslegri heilsu starfsfólks og vinnur samkvæmt heilsustefnu sem hefur það að markmiði að auka lífsgæði starfsfólks, jafnt í vinnu sem og frítíma. Við teljum að góð andleg og líkamleg líðan starfsfólks stuðli að aukinni starfsánægju og skapi góðan og jákvæðan starfskraft. Þátttaka EFLU í Lífshlaupinu er mikilvægur hluti þessarar vegferðar og við erum afar stolt af því hve vel starfsfólk okkar hefur tekið verkefninu.

EFLA vinnur Lífshlaupið þriðja árið í röð