Beint í efni

Endurheimt staðgróðurs á fram­kvæmda­svæð­um

18. mars 2009

Fréttir
Fjallendi með snjóbreiðum á Íslandi, texti þar sem stendur 'Vantar mynd'

Þann 17. mars fengu EFLA og Landgræðslan styrk úr Orkurannsóknasjóði Landsvirkjunar.

Endurheimt staðgróðurs

Í verkefninu verður kannað hvernig lágmarka megi rask vegna framkvæmda og endurnýta staðargróður með sérstakri áherslu á mosa, lyng og annan hægvaxta og viðkvæman gróður.

Einnig verður kannað hvernig best er að standa að upptöku og flutningi á gróðurlagi frá framkvæmdasvæðum með það að markmiði að endurleggja það á fyrri svæði eða ný þar sem skemmdir eða rask hefur orðið.

Í verkefninu er leidd saman þekking á vistfræði og garðyrkjutækni.

Verkefninu stýra fyrir hönd EFLU þeir Árni Bragason og Magnús Bjarklind og frá Landgræðslunni Guðmundur Halldórsson og Kristín Svavarsdóttir.

EFLA - Endurheimt staðgróðurs á framkvæmdasvæðum