Sérfræðingar EFLU komu að nýlega samþykktu aðalskipulagi Norðurþings sem skipulagsráðgjafar og studdu við mótun stefnu um landnotkun og uppbyggingu sveitarfélagsins til næstu 20 ára.
Nýtt aðalskipulag Norðurþings 2025–2045 hefur verið staðfest en í heildarendurskoðun skipulagsins var farið yfir helstu áherslur í landnotkun, byggðaþróun og uppbyggingu innviða með það að markmiði að tryggja sjálfbæra og markvissa þróun á komandi árum. Eitt af því sem einkennir nýja aðalskipulagið er skýr og aðgengileg framtíðarsýn sem byggir á fjórum meginstoðum: góðu samfélagi, kröftugu atvinnulífi, sterku grunnkerfi og ábyrgri umgengni við umhverfið. Skipulagslýsing var kynnt árið 2023 og tillögur þróaðar áfram í samvinnu við samfélagið áður en skipulagstillagan var auglýst og síðar staðfest árið 2026.
Skipulagið byggir á greiningu á þróun samfélagsins, þar sem horft er til íbúafjölgunar og þarfar fyrir fjölbreytt húsnæði á næstu áratugum. Áhersla er lögð á aðalskipulagið nýtist sem leiðarvísir fyrir uppbyggingu, leyfisveitingar og frekari skipulagsvinnu og styðji þannig við þróun og þarfir samfélagsins. Jafnframt var horft til nýrra tækifæra í nýtingu lands og auðlinda, sem og aukinna krafna um vernd náttúru og sjálfbæra þróun.
Stafrænt aðalskipulag
Nýtt aðalskipulag er unnið á stafrænu formi sem auðveldaði miðlun upplýsinga á meðan á endurskoðuninni stóð og enn frekar eftir staðfestingu þess. Aðalskipulagið er lykiltæki fyrir stjórnvöld og íbúa Norðurþings til að taka upplýstar ákvarðanir um uppbyggingu og nýtingu lands. Með aðkomu sinni lagði EFLA áherslu á fagleg vinnubrögð, samvinnu við heimafólk og trausta framtíðarsýn sem styður við sjálfbæra þróun sveitarfélagsins.
Nánari upplýsingar um skipulagið má finna í skipulagsvefsjá HMS.

