Beint í efni

Endurskoðun að­al­skipu­lags Borg­ar­byggðar

12. maí 2026

Fréttir
Tún í Borgarbyggð með gulum blómum og fjöll í baksýn á sumardegi.

Sérfræðingar EFLU komu að endurskoðun Aðalskipulags Borgarbyggðar 2025–2037 sem nær yfir allt land innan sveitarfélagsins og mótar stefnu um landnotkun, byggðaþróun, náttúruvernd og uppbyggingu grunnkerfa til næstu tólf ára.

Í skipulaginu er að finna nokkra þætti sem gera það sérstakt, þar á meðal kortlagningu á takmörkunum vegna vindorku sem myndar mikilvægan þekkingargrunn fyrir stefnumótandi ákvarðanir, þótt engin vindorkuver séu skilgreind í skipulaginu sjálfu. Þá voru settar inn nýjar og uppfærðar upplýsingar um flóðahættu við strendur og ár undir náttúruvá, auk þess sem kortlagning landbúnaðarlands leiddi í ljós að Borgarbyggð hefur innan sinna marka eitt stærsta hlutfall besta ræktunarlands á landinu. Aðalskipulagið er jafnframt hið fyrsta fyrir Borgarbyggð sem unnið er að fullu stafrænt í landupplýsingakerfi, sem felur í sér verulega framför í framsetningu, aðgengi og nýtingu skipulagsgagna.

Teikning af skipulagi í Borgarbyggð

Sveitarfélagsuppdráttur fyrir Borgarbyggð.

Skýr og framtíðarmiðuð stefna

EFLA hafði umsjón með heildarvinnslu skipulagsins í nánu samstarfi við sveitarfélagið og kom að verkefninu með þverfaglegri sérfræðiþekkingu á skipulags-, umhverfis- og verkfræðisviði. Í vinnunni var lögð áhersla á að móta skýra og framtíðarmiðaða stefnu sem stuðlar að sjálfbærri þróun og tekur mið af samfélagslegum, umhverfislegum og efnahagslegum þáttum. Auk þess var lögð áhersla á að hafa stefnuna raunhæfa og aðgengilega.

Samhliða skipulagsgerðinni unnu sérfræðingar EFLU forsendugreiningu og umhverfismat aðalskipulagsins í samræmi við lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Þar var lagt mat á möguleg umhverfisáhrif af stefnu aðalskipulagsins, meðal annars á náttúru, landslag, vatnafar, loftslag og samfélag. Þar sem greind voru möguleg neikvæð áhrif voru settar fram mótvægisaðgerðir með það að markmiði að lágmarka rask og tryggja jafnvægi milli uppbyggingar og verndar.

Sveitarfélagið er afar ánægt með vinnu EFLU við gerð aðalskipulagsins. Verkefnið var unnið af fagmennsku, með skýra sýn og góðu samráði, og niðurstaðan er traustur grunnur fyrir áframhaldandi uppbyggingu sveitarfélagsins

Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Þéttbýlisuppdráttur fyrir Borgarbyggð

Þéttbýlisuppdráttur fyrir Borgarbyggð.

Stafræn framsetning

Aðalskipulagið var unnið stafrænt í landupplýsingakerfi, í samræmi við leiðbeiningar HMS um stafrænt aðalskipulag. Sérfræðingar EFLU sáu um gerð skipulagsuppdrátta fyrir dreifbýli og þéttbýliskjarna sveitarfélagsins, auk þess sem skipulagið er sett fram í skipulagsgreinargerð og stafrænum gögnum sem eru aðgengileg í skipulagsvefsjá HMS.

Sem hluti af verkefninu vann EFLA einnig sérhæfðar greiningar og fylgiskjöl sem nýtast við stefnumótun, þar á meðal flokkun landbúnaðarlands og flokkun vega í náttúru Íslands. Þá var kortlagt umfang takmarkana á landnotkun, svo sem vegna náttúruvár, friðlýstra svæða, minjaverndar og vatnsverndar, með það að markmiði að tryggja upplýstar og vandaðar skipulagsákvarðanir.

Áhersla á sjálfbærni

Mikil áhersla var lögð á samráð og kynningu í ferlinu. Sérfræðingar EFLU komu að undirbúningi og framkvæmd kynningarfunda, samráðs við íbúa, landeigendur og hagsmunaaðila, auk úrvinnslu þeirra umsagna sem bárust á vinnslustigi og auglýsingartíma skipulagsins. Í kjölfar umsagna voru gerðar breytingar á skipulagstillögunni eftir því sem við átti.

Í gegnum allt ferlið lögðu sérfræðingar EFLU sérstaka áherslu á sjálfbæra landnýtingu, loftslagsaðlögun og vernd vistkerfa. Stefnumótun aðalskipulagsins endurspeglar aukna vitund um áhrif loftslagsbreytinga á byggð og innviði og þar eru samþættar lausnir á borð við blágræna innviði, vernd og endurheimt votlendis og markvissa kolefnisbindingu.

Aðalskipulag Borgarbyggðar 2025–2037 er þannig afrakstur heildstæðrar skipulagsvinnu þar sem sérfræðiþekking EFLU í skipulagsgerð, umhverfismati og tæknilegri útfærslu gegndi lykilhlutverki við að móta traustan ramma fyrir framtíðarþróun sveitarfélagsins.

EFLA - Endurskoðun aðalskipulags Borgarbyggðar